Sendið mér póst á eva@isb.is
Kv. Eva
Er búin að teka hverja gæðaæfinguna á fætur annarri síðustu vikuna.  Á eftir Powerade var það 6*Suðurhlíðin í Öskjuhlíðinni á laugardag.  Á sunnudag fórum við Siggi Hansen saman, fór lengra og hraðar en planið var en gekk alveg ljómandi vel.  Á mánudaginn var það svo 5000 m sprettur á braut og ég hljóp á 20:33.  Hádegisskokk á þriðjudaginn ein með sjálfri mér og svo er 4*1100 m á dagskránni á eftir.  Er líka búin að hjóla í vinnuna alla dagana í þessari viku.
Við höfum verið að taka heilmiklar þrekæfingar líka og ég er með þvílíkar harðsperrur eftir átökin.  Þetta hlýtur að skila sér!
Tók að mér að vera vörustjóri í Retail í afleysingum næsta mánuðinn.  Spennandi fyrir mig að prófa eitthvað nýtt og sjá hvernig þetta á við mig og þakklát fyrir að mér sér treyst fyrir verkefninu.
Gekk alveg ljómandi vel í Powerade, varð önnur á rétt rúmum 42 mínútum í rokinu.  Hefði getað tekið betri tíma hefði ég kosið að fórna skjólinu hjá Daníel Smára og Trausta.  Bjarnsteinn dreif mig svo með í flottan endasprett þar sem við skildum stóru strákana eftir.  Nú er ég komin í góða stöðu í stigakeppninni, er búin að planta mér örugglega í annað sætið í heildina og fyrsta í mínum flokk.
Þórólfur hljóp vel þrátt fyrir að hafa verið drullu lasin (thíhí) með magakveisu daginn áður.  Hann kláraði á rúmum 38 mínútum í þetta sinn.
Úslitin eru hér.
Einhvern veginn þá komst ég aldrei almennilega í blogg stuð aftur eftir að ég tók mér hvíld í sumar.  Ég fann að ég var meira að rembast við að skila einhverju af mér af skyldurækni, ekki af því mig langaði alltaf til þess.  Ég fattaði þetta eiginlega bara núna um daginn þegar ég horfði á hana Lilju mína, sem er svo opin og skemmtileg.  Hún er ekki búin að missa þetta barnslega sakleysi ennþá, hún heilsar, knúsar, kjassar og syngur fyrir alla og býst alltaf við því besta frá öllum sem hún hittir.  Einhvern daginn á það eftir að breytast, en þannig er bara lífið.
Mér fannst alveg svakalega gaman að blogga hér áður fyrr, deila gleðinni í mínu lífi, skoðunum, sigrum og sorgum.  En mér finnst ekkert gaman að ritskoða sjálfa mig út í hið óendanlega.  Ég ætla að nota blogg tímann minn í annað á næstunni og er búin að finna mér ótrúlega spennandi verkefni í staðinn.  Núna er einmitt rétti tíminn til að söðla um, ekki vegna þess að að allt er ómögulegt, heldur einmitt vegna þess að allt er eins og ég vil hafa það.
Í dag sagði Lilja grafalvarlega við mig; 'Mamma, þegar þú verður amma, þá verð ég mamma.'  Það var einmitt það sem ég þurfti að heyra til að vera fullkomlega sátt við ákvörðunina.  Tíminn líður nefnilega alveg ótrúlega hratt og það er eins gott að nota og njóta hverrar einustu mínútu strax í dag.  Ekki einhvern tímann seinna þegar litla krílið sem hjúfrar sig að manni, er orðin mamma .
Gabríel tók þessa mynd af mér í dag, í nýju peysunni minni, sem ég var að klára að prjóna!
Amen.
Er algjörlega á haus þessa dagana en þegar jólastúss bætist ofan á vinnu og æfingar þá er ekki mikill tími aflögu.  En alla vega, þetta hefst og ég hef gaman af öllu sem ég geri þó svo ég væri til í aðeins fleiri klukkutíma í sólarhringinn.  Eða kannski ekki, ætli ég myndi bara ekki finna mér eitthvað meira að gera þá...
Er búin að vera á mjög skemmtilegu og fróðlegu námskeiði síðustu tvo daga sem skilar mér út í lífið sem vottuðum Scrum Master, sem þýðir að ég fæ pottþétt hlutverk í næstu Star Wars mynd .  Scrum Master er heiti á hlutverki í ákveðinni aðferðafræði sem notuð er til að vinna hugbúnaðar verkefni og fyrir ekki svo löngu tók ég það hlutverk að mér í mínu teymi í vinnunni.  Planið var að taka vottunarprófið sem hluta af námskeiðinu en eitthvað klikkaði hjá þeim þannig að við tökum það bara á næstu dögum.
Námskeiðið var haldið á Nordica og hluti af prógramminu var hádegismatur á Vox en nú eru þeir að bjóða uppá jólahlaðborðið sitt.  Ég tók góðan snúning á því á mánudaginn en hélt mig við sushi og ávexti í gær svo þetta myndi ekki enda með ósköpum.  Í dag er svo ráðstefna á Nordica og þriðji í jólahlaðborði .
Hörku sundæfing í gær, fór upp í 2500 metrana og synti meðal annars 5* 100m skrið/10 sek hvíld á milli og kláraði alla sprettina á 1:50 - 1:53.  Fyrir þetta námskeið átti ég best 1:51 í 100 m.  Jólaföndur í leikskólanum hjá Lilju í eftirmiðdaginn og svo er sprettæfing í Höllinni.  Jeehaww....
Sá þessa frétt á ÍR-síðunni í morgun. Gott mál.
Enn ein góð helgin í safnið.  Byrjuðum laugardaginn á þrusu æfingu með ÍR-ingum, tók 21,6 km á 5:00 pace í frábæru veðri.  Toppurinn að fá góðan félagsskap til að halda sér við efnið.  Eftir hlaup fórum við í Langholtsskóla þar sem haldin var laufabrauðsdagur og Þórólfur tók eina vakt í að steikja og stóð sig með miklum sóma.  Ég fór svo á randið með mömmu í jólagjafastúss á Laugaveginn og í Kringluna.  Við vorum snarar í snúningum því við áttum miða á Jólasögu í Loftkastalanum klukkan fimm.
Við vorum voða spennt að fara í leikhúsið.  Gabríel var boðið í afmæli á sama tíma og ákvað að láta það ganga fyrir svo við buðum Mirru frænku með, en hún er fimm ára.  Stelpurnar voru að springa úr spenningi að sjá jólaleikrit.  Jaháhhh, það var nefnilega það.  Við erum ennþá aum í ras.... eftir þessa aftanítöku!  Tíuþúsundkall fyrir að sjá Ladda í sínum eigin fötum standa fyrir framan hvítt lak með tvo pappakassa á sviðinu og þylja upp texta...  Stelpurnar (og við) vorum alltaf að bíða eftir að sýningin myndi byrja, þangað til að við áttuðum okkur á því (ásamt hinum í salnum) að þetta var allt og sumt!  Ég hef ALDREI áður farið út af sýningu í miðjum klíðum áður en í þetta sinn var ég þeirri stundu fegnust að komast út með börnin og við breyttum leikhúsferðinni í snarhasti í ísbíltúr.  Mirra greyið sagði 'veistu það Eva, þeir hafa örugglega fært jólsýninguna, þetta var bara gamall kall að tala...'.  N.b. þessi sýning er auglýst sem metnaðarfull uppfærsla... fyrir alla aldurshópa...   VARÚÐ!  Mesta prump sem ég hef upplifað og aldrei séð eins mikið eftir aurnum.
Í dag fórum við í almennilega jólastemmningu í bæinn og horfðum á þegar kveikt var á Óslóartrénu.  Lilja var alsæl með jólasveinana og allt fólkið.  Kostaði ekkert .
Ég bjó til lítinn snjókarl fyrir Lilju meðan við biðum eftir jólasveinunum.
Búið að kveikja á jólatrénu.
Jólasveinarnir rosa fyndnir.
Góð sprettæfing í Höllinni á mánudaginn, nú finnum við hjónin verulegan mun á því hvað æfingarnar eru viðráðanlegri og maður er ekki alveg jafn búin á því eins og fyrstu vikurnar.   Sundæfingin í gær var líka óvenju góð, hélt miklu betur dampi og náði að fara 2 * 25 m í kafi sem segir mér að ég er að auka sundþolið.  Á eftir er svo aftur sprettæfing 1200-800-600-400-600-800-1200, aldrei prófa það áður .
Í kvöld er dömukvöld hjá hjólreiðaversluninni Erninum.  Forsvarsmenn þess höfðu samband við mig fyrir nokkrum vikum og báðu mig um að taka þátt í þessu með þeim, sem var ekkert nema sjálfsagt.  Hlakka til!
Prjónafréttir: Hálfnuð með kragann!
Dæmigert mjónuhlaup í gær, langt og rólegt (ÍR rólegt), sem hafði þær afleiðingar að vigtin var í sögulegu lágmarki, þ.e. miðað við síðustu mánuði.  Er komin akkúrat á þann stað sem ég vil vera, matarræðið í fínu lagi og í samræmi við aukið álag.  Ég fór tæpa 24 km í góða veðrinu, helminginn með ÍR-ingum og helminginn með Michael Bublé, mjög góð blanda.  Kom heim í nýbakað Sibbu-brauð (döðlubrauðið sem við fengum í brunchinum) en ég hafði skellt í það og hent inní ofn áður en ég lagði í hann og Þórólfur sá um að kippa því út fyrir mig.  Mmmmmm..., þarf að pikka inn uppskriftina og henda henni inn en þetta er klárlega búið að taka yfir tiltilinn uppáhaldsbrauðið mitt!
Við mæðginin fórum í verslunarferð eftir æfingu, guttan bráðvantaði nýjar legghlífar í boltann og svo er bara gaman að dingla saman.  Eftir blund hjá Lilju rölti ég með hana í Húsdýragarðinn.  Á leiðinni stálumst við til þess að gefa öndunum pínu brauð.  Gæsirnar voru svo aðgangsharðar við litlu prinsessuna að ég þurfti að forða henni uppá brúarhandriðið.  Þar sat mín alsæl og henti molunum í endurnar.  Í Húsdýragarðinum skoðuðum við selina, vísindaverið, nýfæddan kálf og svo fengum við að sjá þegar beljurnar voru mjólkaðar.  Annars var Lilja mest spennt fyrir því að láta mig bíða einhvers staðar (ALVEG KJURR MAMMA), hlaupa lengst í burtu og kalla svo 1,2 og 3 og þá mátti ég hlaupa á eftir henni.  Skríkti og hló.
Rólegheitakvöld og ég náði að prjóna slatta, komin upp fyrir ermar, nú er ég orðin spennt að klára!
Engin æfing á fimmtudag og föstudag, rólegheit á þriðjudag og miðvikudag, afleiðingin mikið hungur eftir góðri æfingu.
Það er líka svo gott að komast út og taka vel á því þegar maður er búin að vera á tveggja daga 'hard core' Dale Carnegie námskeiði sem krefst þess að maður fari stöðugt LANGT út fyrir sitt 'comfort zone', díhhhh...  Kom heim eins og barinn rakki!
En alla vega, hittum ÍR-inga við Seltjarnarneslaugina í morgun og eftir góða upphitun tókum við 3 * 1700 m hring sem innihélt 3 mislanga spretti, endaði á brekkuspretti upp Bakkavörina.  Eftir það var farið beint í 6 * brekkuspretti upp Bakkavörina.  Hrikalega góð æfing og ég fann mig mjög vel, var ekkert langt á eftir strákunum.  Samtals ca. 16 km.
Eftir æfingu fórum við í brunch hjá henni Sibbu.  Tengdapabbi skutlaði krökkunum til okkar í herlegheitin og við gæddum okkur m.a. á nýbökuðu döðlubrauði og ávaxtasalati, nammi namm.  Fékk uppskriftina af brauðinu og ætla að baka á morgun.
Restin af deginum fór í að gefa góðum gestum kaffi og prjóna svolítið, er orðin spennt að klára nýjustu peysuna mína.  Farin að prjóna og hvíla mig fyrir 25+ í fyrramálið, yeeehawwww...
Er á skemmtilegu og krefjandi námskeiði hjá Dale Carnegie þessa dagana.  Ég get tekið heilmikið með mér af því sem ég hef lært og nýtt mér í framtíðinni.  Mér finnst tímanum vel varið, vildi bara stundum óska að ég ætti aðeins meira af honum.
Í gærkvöldi eftir námskeiðið fengum við góða vini í mat til okkar og það var svo notalegt.  Eldaði einn af uppáhaldsréttunum mínum 'Flygande Arvidsson', set kannski uppskriftina inn við tækifæri (... þegar ég hef tíma...) og svo gæddum við okkur á afgangs eftirréttum frá hausfagnaðinum.  Þetta þarf ekkert að vera flókið.  Við vinkonurnar settumst svo í prjónahornið, karlanir okkar í kósý sófann og svo möluðum látlaust í nokkra tíma, rifjuðum upp fyndnar minningar og frækin framtíðarplön.
Upp klukkan 6 í morgun af því að það var heimanám á námskeiðinu (var ekki búið að segja mér það...).  Nú er bara að koma sér af stað út í smekkfullan dag.  Eins gott að maður sé í ágætis formi.
Átti alveg hreint frábæran dag á Þjóðfundi á laugardaginn.  Það er erfitt að lýsa uplifuninni og andrúmsloftinu á staðnum og fyndið að heyra þá sem ekki voru þarna vera að skilgreina fundinn og hafa á honum miklar skoðanir.  Ég upplifði samkennd, vinsemd, kjark og kærleika hjá mínu fólki og reyndar öllum sem ég talaði við á staðnum.  Við sem þarna vorum eigum eitthvað alveg spes og það er ekki alltaf auðvelt að útskýra svoleiðis.
Úr einni gleði í aðra.  Ég hafði rétt svo tíma til að snurfusa mig aðeins áður en vaskir ÍR-ingar bönkuðu upp á í tilefni Haustfagnaðar.  Á boðstólnum var fordrykkur, matur frá Austur-Indíafélaginu og svo voru nokkrir úr hópnum sem komu með kaloríu-BOMBUR í desert.  Frábært kvöld í hópi góðra félaga og áður en kvöldið var liðið var búið að skrá mann og annan í Challenge Copenhagen .
Þessi vika ætlar að vera jafn þétt og sú síðasta.  Fórum á hörku sprettæfingu í gær í Höllinni, 3 *2500m og svo þrekhringur á eftir.  Þjálfarinn bætir jafnt og þétt við prógrammið svo það sé nú öruggt að við fáum okkar út úr þessu.  Var nú samt ekki um sel þegar einn missti út úr sér að það vari eitthvað til sem héti 'Súperfroskar' og við fengum að sjá dæmi.  Hmmm....
Í kvöld er það sund og annað kvöld er svo hlaupa námskeið í Heilsuskóla Keilis í Keflavík.  Það voru tæplega áttaíu manns búnir að skrá sig þegar ég heyrði síðast í skipuleggjendum!
Rock and Roll og ekki mikið prjónað í þessari viku .
Það er sérstakur dagur í dag.  Fyrir sex árum síðan, með fiðring í maganum, staðfesti ég fyrir Guði og mönnum að ég væri tilbúin til að skrifa undir lífstíðarsamning.  Það er ekki lítil ákvörðun.  Það eru ekki margar svona stórar ákvarðanir sem maður tekur á lífsleiðinni og ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta er besta ákvörðunin sem ég hef tekið í lífinu, ásamt því að eignast börnin mín.
Þegar ég hugsa um lífsförunaut minn þá hugsa ég um hvað ég er heppin að eiga einhvern að sem er til staðar fyrir mig þegar ég er glöð eða hrygg, hugrökk eða lítil í mér, sterk eða aum, algjör njóli eða ótrúlega gáfuleg, góð og líka þegar ég misstíg mig.  Einhvern sem kippir mér á jörðina þegar ég missi jarðsamband og er ekki hræddur við að segja mér að ég hafi rangt fyrir mér.  Einhvern sem getur látið mig springa úr hlátri, komið mér á óvart, sem ég get þagað með, hlaupið með og leikið mér við.  Betri vin er ekki hægt að eiga og ég gæti ekki hugsað mér betri föður barnanna minna.
Í dag fór ég út að hlaupa og heyrði lag sem ég hef ekki heyrt áður en sagði eiginlega allt sem mig langar til að segja.  Í dag er ég svo glöð að mér er alveg sama þó ég sé væmin og hvað öllum öðrum í heiminum finnst.  Til þín, ástin mín.
<object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/9B2tVcxD0GU&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/9B2tVcxD0GU&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/9B2tVcxD0GU&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
You're a falling star
You're the getaway car
You're the line in the sand
When I go to far
You're the swimming pool
On an august day
And you're the perfect thing to say
And you play it coy but it's kinda cute
Oh when you smile at me you know exactly what you do
Baby don't pretend that you don't know it's true
Cause you can see it when I look at you
And in this crazy life
And through these crazy times
It's you
It's you
You make me sing
You're every line
You're every word
You're everything
You're a carousel
You're a wishing well
And you light me up
When you ring my bell
You're a mystery
You're from outer space
You're every minute of my every day
And I can't believe that I'm your man
And I get to kiss you baby just because I can
Whatever comes our way
We'll see it through
And you know that's what our love can do
You're every song
And I sing along
Cause you're my everything
Ég var einhvern veginn búin að sjá fyrir mér rólegheita, kertaljósa, prjóna haust eftir annasamt sumar.  Geri mér grein fyrir að það var kannski ekki alveg í takt við raunveruleikann, mér finnst svo margt skemmtilegt og meðan ég get, þá vil ég taka þátt í lífinu af fullum krafti.
Þessi vika er sérstaklega viðburðarrík.  Fyrir utan þetta venjulega, barnastúss, vinnu, æfingar, og prjón þá er dagskráin pökkuð.  Fórum á 6. bekkjarkvöld og bingó í skólanum hjá Gabríel á þriðjudagskvöld.  Svaka flott hjá krökkunum, vinningar handa öllum og góðar veitingar á eftir.  Í gærkvöldi var undirbúningsfundur fyrir lóðsa á Þjóðfundi 2009, sem fer fram um helgina.   Við hittumst í gamla Ellingsen húsinu, hátt í 100 manns og fórum yfir dagskránna lið fyrir lið.  Hlakka svo mikið til að taka þátt í þessu, þetta verður spennandi.  Í kvöld er það Powerade með öllu tilheyrandi.  Laugardagurinn er svo pakkaður frá morgni til kvölds.  Dagskrá Þjóðfundarins er frá 8:30 til 16:30 og þá er eins gott að taka sprettinn heim því við Þórólfur ætlum að hýsa Haustfagnað ÍR-inga og við fáum til okkar yfir 20 manns í mat og heljarinnar veislu!
Við hjónin eigum svo 6 ára brúðkaupsafmæli á sunnudaginn, höfum bara ekki pláss fyrir óvissuferð til spennandi stórborgar í þetta sinn og ætlum í staðinn að fara í brunch til pabba og mömmu og gera eitthvað lágstemmt og krúttlegt í tilefni dagsins.
Læfs gúdd
Hörkuæfing í Höllinni í gær.  7 * 1000 m á 5 - 10 km pace.  Þórólfur fann út fyrir mig að ég ætti að hlaupa 100 m á 24 sek. og 400 m á 48 sek. miðað við að halda 4:00 pace.  Gekk alveg ótrúlega vel að hlaupa inni á brautinni, var nánast alla hringina á 47 sek. og fór aldrei yfir 48.  Í síðasta sprettinum ruglaðist ég í talningunni  og var ekki viss um hvort ég væri búin með 4 eða 5 hringi.  Tók einn hring í viðbót til vonar og vara og kom í ljós að ég endaði í 1200 m.
Eftir sprettina var þrekhringur sem við tókum þrisvar sinnum:
10 froskahopp
hlaup
10 armbeygjur
10 bangsahopp
hlaup
15 tvíhöfði á bekk
25 magaæfingar
Æfing fyrir allan peninginn sem sagt .
Þriðjudagar eru hálfgerðir þríþrautardagar því þá hjóla ég í og úr vinnu, hleyp í hádeginu og svo er sundæfing í kvöld.  Eins gott að hugsa bara um eitt í einu...