13.2.2008 | 09:47
Brosa meira
Fórum í fjölskyldumyndatöku í gær, má ég frekar biðja um tanntöku... Við höfum aldrei farið í svona myndatöku með börnin og renndum blint í sjóinn. Einhver mælti með þessari stofu og við létum vaða. Tókum með spariföt á krakkana og Gabríel fór með fótboltagallann sinn. Áður en við lögðum í hann vorum við að spá í að taka eitthvað dót fyrir Lilju en ég sagði að það hlyti að vera fullt af nýju dóti á staðnum sem væri miklu skemmtilegra en gamla dótið.
Við mættum á staðinn og við fyrstu sýn virtist þetta ekki mjög spennandi og ekki skánaði það. Krakkarnir máttu bara standa á smá svæði innan um fullt af ljósum og svo voru tveir gamlir tréstólar sem hann myndaði þau í til skiptis. Ljósmyndaranum var fyrirmunað að muna hvað krakkarnir hétu og kallaði sífell 'Stóri strákur brostu meira, líttu hingað' eða 'Stelpa vertu kyrr, ekki með höndina í munninum...'. Þegar Lilja var alveg að gefast upp á þessu öllu saman dró gaurinn fram bangsa og veifaði framan í hana, 'Stelpa, sjáðu bangsann!!!'. Ekki spennandi.
Við vorum þeirri stundu fegnust þegar við komust út aftur. Verður spennandi að sjá hvernig myndirnar koma út en eitt er víst að við reynum eitthvað annað næst.
Fór út á sleða með stráknum mínum og hljóp litla hringinn minn í gærkvöldi. Agga og Andri komu svo í kvöldkaffi. Gaman.
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Velkomin á nýjar bloggslóðir!
Anton Bragi skilar kærum þökkum til Gabríels fyrir rúmið .... og btw límmiðarnir á því slógu í gegn og fá að halda sér :)
Agga, 13.2.2008 kl. 09:56
Þú hefðir betur farið í Gamanmyndir, þar var mjög afslappað og dásamlegt umhverfi. En ég kannast mjög vel við þetta myndatökudæmi, maður er svona hálfsveittur þegar maður kemur út
Ásta (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 13:34
Sæl Eva
Ég mæli með Grétu ljósmyndara (www.greta.is) við öll tækifæri. Ég fór með minn í myndatöku þar í vor og myndirnar voru alveg einstaka. Þetta var allt mjög afslappað og hún reynir að láta barnið bara vera það sjálft en ekki í stífri uppstillingu á stól. Hún er snögg og lipur og fangar rétta "mómentið", kann sitt fag.
Sólveig, 15.2.2008 kl. 10:25
Takk fyrir ábendinguna Sólveig. Kíki á síðuna hennar .
Eva Margrét Einarsdóttir, 15.2.2008 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.