3.5.2008 | 17:30
Húsmæðraorlof
Tók mér frí á föstudaginn, bara ég ein með sjálfri mér. Þórólfur var á kafi í vinnunni og passaði ekki fyrir hann að taka frídag. Ég hjálpaði við að koma krökkunum í skóla og pössun og svo settist ég niður með kaffibollann minn og blaðið og dæsti af ánægju. Átta tímar framundan, ekkert hlaup og ekkert sem ég þurfti að gera, þvílíkur lúxus.
Eftir morgunkaffið fór ég í sund í nýja skvísubikiníinu mínu, synti í fyrsta skipti í marga mánuði og lá svo eins og klessa í heita pottinum á eftir, í sólinni. Eftir sundið fór ég í klukkutíma nudd og kom út endurnærð og fín. Kom aðeins við heima hjá mömmu og pabba og gerði klárt fyrir heimkomu þeirra frá útlöndum. Heima hjá þeim er þessi fíni hægindastóll og áður en ég vissi af var ég komin í dúnsokka af mömmu, undir teppi og lagði mig í svona klukkutíma. Fór svo í nokkrar búðir og dinglaði mér áður en ég sótti Lilju og lífið varð aftur eins og það á að vera .
Í morgun fórum við á æfingu með Laugaskokki. Við erum farin að hlaupa okkur niður og í dag voru 'bara' 19 km á dagskránni. Fyndið samt að þegar maður veit að maður er að fara laaaangt þá er það ekkert mál, en í dag þá vorum við svo góð með okkur, bara 19 iss piss... Mér fannst þessir 19 bara mjög langir 19 og var fegin að koma heim til mín!
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er öfundsjúk
Jóhanna Eiríksd. (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 11:35
Flott hjá þér að taka svona dag og hvíla þig. Og það er ótrúlegt hvað maður verður þreyttur þegar kemur að hvíldarvikunum og hvað svona 19 km geta verið eitthvað langir. En svo lagast þetta sem betur fer aftur og allt verður klárt 18 maí...
Hafdís (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 13:39
Ekki spurning, við mössum þetta í Köben stelpur!
Eva Margrét Einarsdóttir, 6.5.2008 kl. 08:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.