24.8.2008 | 12:31
Til hamingju!
Reykjavíkurmaraþon, á þessum degi samgleðjumst við öllum þeim sem taka þátt í sportinu sem er okkur svo mikilvægt og það er engu líkt að vera innan um ótrúlegan fjölda sigurvegara. Sérstaklega til hamingju allir sem þurftu að taka sér tak til að vera með en gerðu það samt, létu vaða!
Fyrir okkur voru hápunktar dagsins að fá að hlaupa með börnunum okkar og mömmu minni, en þau sáu um bætingarnar í ár. Gabríel hljóp 3 km á 15:18, mamma á 22:47 (bætti sig um 5 mínútur frá því í fyrra!!!) og Lilja rúllaði upp fyrsta Latabæjarhlaupinu með dyggum stuðningi mömmu sinnar.
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
krúttlegt að sjá ykkur mæðgur (eldra settið) hlaupa saman í RM.
Takk fyrir frábæran fyrirlestur á föstud.kvöldið. Sat í mér þetta að maður getur breytt ýmsu og bætti sig í svo mörgu.
Jóhanna (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 15:29
Takk fyrir frábæran fyrirlestur á föstudaginn. Gaman að þið skylduð öll fjölskyldan koma og borða með okkur í gærkvöldi.
Bogga (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 16:07
Ég missti því miður af fyrirlestrinum vegna óviðráðanlegra aðstæðna en gaman væri að fá power point showið sent í tölvupósti. Til hamingju með flott hlaup og alltaf gaman að sjá þig brosa út að eyrum í hlaupum!
Sóla (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 18:19
Takk fyrir fyrirlesturinn á föstudaginn Eva, hann var mjög góður. Ég var reyndar svo mikið að hugsa um hann á leiðinni heim að ég lenti næstum í árekstri. En sem betur fer slapp það til :o)
PS. Væri gaman ef þú settir inn á síðuna listann yfir öll litlu atriðin sem þú ferð eftir.
Guðrún Lauga Ólafsdóttir, 24.8.2008 kl. 18:39
Til hamingju með fjölskylduna. Yndislegar myndir. Já, ég segi eins og Sóla, ég væri sko til í að fá fyrirlesturinn beint í æð fyrst maður missti af honum.
Ásta (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 19:03
Ég komst því miður ekki á fyrirlesturinn en væri svo til í að sjá/heyra um öll gullkornin sem þú lumar á.
Valdís (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 20:08
Takk fyrir fyrirlesturinn Eva. Því miður náði ég ekki að hlusta á hann til enda. Það var sérstaklega gaman að heyra hvernig hlaupin hafa breytt öllum nálgunum og hugarfari. Búið að byggja upp hugarfar sigurvegarans í stað þess að láta veður og vinda stjórna ferðinni.
Gunnlaugur (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 21:04
Já þetta var snild, ég þarf að fá litlu leyndarmálinn á ísskápinn við hliðina á geðorðunum kv. vala
hvala svala (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 21:08
Takk fyrir hlý orð og þetta hvetur mann heldur betur áfram. Ég lifi á þessu í kvöld þegar ég tekst á við nýja áskorun, pjúfff... En hmmmm kannski læt ég útbúa svona segul, þá verður það jólagjöfin frá mér í ár .
Eva Margrét Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.