18.10.2008 | 08:51
Kanntu brauð að baka...
Ég lærði að baka All-Bran brauð fyrir einhverjum grilljónum ára, í einhverju aðhaldinu. Ég er búin að baka þetta brauð regluglega í gegnum árin, svona u.þ.b. einu sinni í viku með einhverjum smá hléum. Á tímabili skipti ég út rúsínunum og apríkósunum fyrir banana. Hérna er uppskriftin:
All Bran Brauð frá Lindu
- 3 Bollar All Bran
- 3 Bollar Fjörmjólk
- 3 Msk Hunang
- 1 Bolli Púðursykur (voru 3 í upprunalegri uppskrift)
- 200 grömm rúsínur og þurrkaðar apríkósur í bland, smátt niðurskorið (hægt að nota stappaða banana i staðinn)
Læt þetta standa í smá stund meðan ég kveiki á ofninum 180° og smyr 2 brauðform, svo að All Branið verði mjúkt. Bæti svo í skálina:
- 3 Bollar hveiti (nota stundum heilhveiti)
- 3 Tsk lyftiduft
- 1 og 1/2 Tsk salt
Set í tvö brauðform og baka í 30 mínútur á 180°, lækka síðan hitann í 150° og baka í 60 mínútur í viðbót.
Þegar brauðin eru tilbúin sker ég þau í tvennt og hendi í frysti og tek þau svo bara út jafnóðum. Fyrir utan að vera svakalega góð og holl þá getur maður slegið í gegn og hent svona brauði í vinkonur sínar þegar þær skutla manni heim af æfingu .
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ha! Hendirðu brauðinu frosnu í vinkonurnar? Eru þær ekki ex-vinkonur eftir þann gjörning? :)
Börkur (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 15:16
jiha... keypti apríkósur í gær svo ég get látið dj baka í fyramálið á meðan ég sef...
Já börkur ég leit ekki vel út eftir að hafa fengið brauðið í augað... Áá
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, 18.10.2008 kl. 16:10
Þær eru seigar þessar stelpur þó þær séu hvorki stórar né stæðilegar....
Ánægð með að þú fullnýtir DJ. Það mætti halda að ég hefði hent brauðinu í hnéð á þér en ekki augað, miðað við km magn síðustu viku!!! ...en í alvöru talað, þá er ég mjög ánægð með að þú hlustir á skrokkinn og hvílir, kemur betri en ný til baka .
Eva Margrét Einarsdóttir, 18.10.2008 kl. 22:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.