4.1.2009 | 21:05
Hlaup hér, hlaup þar og hlaup alls staðar... lallalalla...
Í dag var 12. hlaupadagurinn minn í röð en það geri ég ekki oft. Það var engin ástæða fyrir því önnur en að mig langaði bara út að hlaupa og var í fríi. Samtals gerði jólafríið 130 km og ekki gramm upp í vigt þrátt fyrir veislur á veislur ofan, ljúft. Tók út statistikk úr hlaupadagbókinni fyrir árið 2008.
- Hljóp 2929 km
- Hljóp 275 daga á árinu
Þetta var frábært hlaupaár fyrir mig, bætti mig í öllum vegalengdum og náði settum markmiðum í 5 km, maraþoni og á Laugaveginum.
Undir 40 í 10 og undir 1:30 í hálfu erfast bara yfir á 2009 .
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt ár Eva
Til lukku með allan þennan árangur. Veistu að þú hljópst hringveginn tvisvar og gott betur miðað við vegalengd? Greinilega í fanta formi stelpa :) Vona að árangur þessa árs verði eins og þú ætlar þér. Sjáumst kannski á þessu ári, kv. Linda Parísarskvís.
Linda Björk Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 16:38
Takk fyrir Linda. Það er nú alveg spurning um að henda upp einu litlu kaffiboði til að við náum saman. Var að fara í gegnum myndaalbúm um jólin og omg, fullt af óbirtingarhæfum gleðimyndum frá París...
Eva Margrét Einarsdóttir, 6.1.2009 kl. 09:14
Glæsileg þú í blaðinu í morgun, hlaupamyndin flott en mikið hrikalega hleypurðu hratt :) 3000km á 130klst!!
kv. hvalurinn
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, 8.1.2009 kl. 10:16
Já sææælll. Það er náttúrulega bara bull (tímafjöldinn). Ég kíkti á hlaupa skránna og stundum þá er ég bara búin að skrá vegalengdina en ekki tímann á hlaupinu og þar af leiðandi kemur sá tími ekki fram í samtölunum. Mér fannst þetta líka ótrúlega fáir klukkutímar án þess að spá í það frekar.
Eva Margrét Einarsdóttir, 8.1.2009 kl. 10:25
Glæsilegur hlaupaárangur hjá þér Eva.
Engin smá vegalengd sem þú hljóps í fyrra. Vonandi verður þetta ár líka svona gott hjá þér.
Alma María (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.