26.2.2009 | 20:59
Mission accomplished
Ég hafði um tvennt spennandi að velja eftir vinnu í dag. Annars vegar að taka þátt í inniþríþraut í Laugum og hins vega að takast á við erfiðustu æfingu sem ég hef 'lent í' aftur.
Það voru nokkrar ástæður fyrir að ég valdi seinni kostinn. Fyrst ber að nefna að það á alls ekki vel við mig að mistakast eitthvað þegar ég einu sinni hef ákveðið að gera það. Í síðustu viku dru...... ég alveg upp á bak í þessari æfingu og þurfti að hætta með skottið á milli lappanna. Svo er hann Gabríel minn að fara í sína fyrstu langferð 'ALEINN' með öllum fótboltafélögunum í fyrramálið til Akureyrar og ég fæ ekki að sjá hann aftur fyrr en á mánudagskvöldið. Þá er náttúrulega must að eiga kósýkvöld í kvöld með honum. Að lokum þá er ég haldin einhverri sundlauga fóbíu þessar vikurnar, ekki það að ég vilji ekki synda eða skella mér í heita pottinn, en tilhugsunin um að lufsast og bíða hríðskjálfandi í sundlaug er bara ekki að gera neitt fyrir mig. Er líka að berjast við þessa 'ekki löngun' þegar Lilja lús er í barnasundinu og pabbi hennar hefur tekið það að sér síðustu vikur, brrrr....
Sem sagt, eftir vinnu voru það brekkusprettir dauðans á bretti í Laugum. Æfingin er svohljóðandi: Upphitun - 3 * 3 mínútur á 10 km keppnishraða í 4° halla - 3 til 4 mínútur hvíld í 1° halla á milli - Niðurskokk. Hjá mér voru sprettirnir á 14,5 og hvíldin á 9.
Í síðustu viku hélt ég út 1 mín í fyrsta, 1 mín í næsta og 1 1/2 m í þriðja og var algjörlega búin eftir þetta, reyndar var hvíldin líka í 4° halla þá sem var bara alls engin hvíld. Í dag gekk þetta betur og ég kláraði æfinguna. Í fyrsta sprettinum hugsaði ég nú samt með mér að ég myndi bara taka 3 - 2 - 1 mín. Í öðrum sprettinum var ég komin á að taka 3 - 3 -2. Þegar ég var hálfnuð með þriðja þá kom bara ekki til greina annað en að klára þetta. Hrikalega erfitt en jafn hrikalega gaman að geta klárað. Tek fjóra næst .
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Púff...dugleg!
Sóla (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 22:25
Takk Sóla sæta. Ég efast ekki um að þú værir í þessum með mér ef HH myndi leyfa!
Eva Margrét Einarsdóttir, 1.3.2009 kl. 18:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.