31.3.2009 | 13:17
Töff
Eða þannig... Fór í ræktina í morgun og svo beint í nudd hjá honum Guðbrandi. Eins og venjulega skottast ég á klóið áður en tíminn byrjar. Setti símann minn á vaskinn og þegar ég er að fara að ná mér í handþurrkur, rekst ég í símann, reyni að grípa hann í loftinu, tekst ekki og blúbbbsss.... Beint ofan í klósettið!
Þetta er flottur Blackberry sími sem ég var ekki alveg til í að sturta niður (þó þetta sé vinnusími) og þá var ekkert annað að gera en bretta upp ermar .
Eftir rækilegan hand/handleggs og símaþvott, þurrkun með hárþurrku og tveggja tíma dvöl á ofninum virðist hann samt vera búin að syngja sitt síðasta þrátt fyrir þetta frækilega björgunarafrek...
Hugga mig við það að mér hefur tekist að skemmta ansi mörgum í vinnunni í dag; "Eva..., Eva..., segðu þeim hvað gerðist við símann þinn, hahahhahaha...."
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Settu hann á ofninn og láttu alveg í friði í 2 daga, þá fer hann aftur í gang !
Auður (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 13:56
Já það er málið að láta þá vera nógu lengi á ofninum það á líka við Ipotin...Ég er búin að þvo hann í þvottavél, en hann fór í lag eftir góða þurkun
Hafdís (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 15:18
Eva, ég lenti í þessu um áramótin, nema minn Blackberry fór ofan í skúringarfötu. En það dugðu 7 tímar á ofninum , sundurtekinn og hann er eins og hann hafi aldrei lent í vatni.
Ásta Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 16:14
Ég held að flestir hafi lent í því að missa símann sinn ofan í klósettið. Sigrún Björk dóttir mín fór heldur illa út úr því vegna þess að hún var akkúrat að sturta honum niður þegar hann fór. En það var nú bara dótasími :-). Leyfðu kvekendinu að þorna í nokkra daga...
Sóla (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 22:16
Update: Takk fyrir góð ráð, eftir nótt á ofninum er síminn minn betri en nýr og ilmar eins og sápa .
Eva Margrét Einarsdóttir, 1.4.2009 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.