2.4.2009 | 12:58
Ný vika
Síðasta vika var að mörgu leyti óvenjuleg en líka mjög skemmtileg og viðburðarrík. Ég fékk mikil viðbrögð við greininni í Vikunni og fyrir mig var þetta jákvæð reynsla sem ég lærði heilmikið af og sé ekki eftir.
Framkvæmdunum á heimilinu lauk í gær og þá fluttum við aftur heim (eftir aðra lotu) frá mömmu og pabba. Í þetta sinn var sambýlið enn nánara þar sem við bjuggum öll í kjallaranum því nú er verið að taka efri hæðina hjá þeim í gegn. Farvell sérútbúni hafragrautur og sjálfvirki fataþvottur...
Annað sem var óvenjulegt var að ég hljóp ekki neitt þessa vikuna en í staðinn var ég dugleg að fara í Laugar á stigvélina og að hjóla. Síðustu 11 daga er ég búin að stíga tæplega 70 km og hjóla rúmlega 150 km, kemur sér vel fyrir tví/þríþrautir framundan!
Á þessari inniveru minni er ég búin að horfa á fullt af skemmtilegum þáttum en það sem stendur upp úr er að á laugardaginn hlustaði ég í fyrsta sinn á Simma og Jóa. Vá hvað þeir eru hrikalega fyndnir!!! Ég skellti uppúr oftar en einu sinni og nú er málið að ná sér í nokkra þætti á iPodinn, þvílíkir snillingar.
Fór í sjúkraþjálfun hjá Rúnari í gær og eftir pot, nudd og nokkrar stungur þá var ég útskrifuð, betri en ný og bila aldrei (aftur). Má fara að hlaupa á laugardaginn, bíð með spretti í viku en má hlaupa eins langt og mig langar, jeeehawww...
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Getur þú aðstoðað mig að verða hlaupari ?
kv Elín
Elín 'Ósk Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 13:52
Sendu mér póst á eva@isb.is og ég skal gera það sem ég get .
Eva Margrét Einarsdóttir, 2.4.2009 kl. 15:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.