12.6.2009 | 15:25
Betri í dag en í gær
Var ansi stirð og stíf í morgun en er öll að koma til. Það sem háir mér mest er að ég fékk ansi þungt högg á öxlina og á erfitt með að lyfta einhverju með hægri hendinni og ég var frekar dösuð í dag.
Besta er að lappirnar á mér sluppu alveg ótrúlega vel, smá sár á hnénu og einn marblettur sem ég finn ekki fyrir nema þegar ég sest á hækjur mér, sem ég þarf náttúrulega ekkert endilega að gera þessa dagana. Búin að prófa að skokka hring í kringum borðstofuborðið og það var ekkert mál, þá hlýt ég að geta lufsast Gullsprettinn ef ég plasta mig í bak og fyrir..., erhaggi?
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Um að gera að fara varlega og þekkja sín takmörk. Þú verður að forðast að synda í Laugarvatninu þetta árið : ) í Gullsprettinum þar sem það eykur möguleikana á sýkingu í sárunum. Þú hefur sloppið ótrúlega vel og um að gera að fara vel með sig því maður verður oft lurkum laminn á öðrum og þriðja degi og jafnvel lengur.
Steinn (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 20:24
Þetta hljómar nú eins og þú talir af reynslu :) Áttu svona dettisögu/ur kannski. Mér liði sko miklu betur þá .
Eva Margrét Einarsdóttir, 12.6.2009 kl. 20:46
Sæl Eva
Váá þetta hefur verið rosalegt, ég er nú sammála síðasta ræðumanni þú hefur sloppið ótrúlega vel vona að þú náir þér sem fyrst !!
Með bata kveðju
Díana Sig.
diana (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.