15.9.2009 | 09:21
Hlaupari verður til
Það gerðist svolítið merkilegt í Reykjanesbæ um daginn. Það fæddist nefnilega glænýr hlaupari. Hann Gabríel okkar hefur nú reyndar hlaupið með okkur öðru hvoru frá því hann var smá strákur en það hefur meira verið af því að við 'hvöttum' hann 'mjög mikið' (ok, og mútuðum...) til þess heldur en að hann hafi beint langað. Á tímabili missti hann allan áhuga, vildi ekki sjá það að vera með og það var eiginlega bara í vor sem hann fór að vera tilkippilegur aftur. Hann fór í Flugleiðahlaupið, meira bara til að hanga með mömmu sinni, fá að vaka lengur og fá Subway samloku. Eins fórum við saman í Stífluhlaup í Árbænum. Hann ætlaði ekki að nenna að vera með í RM en ákvað á síðustu stundu að fara í skemmtiskokkið, langaði líka í bol...
Það er fastur liður hjá okkur fjölskyldunni að vera í Reykjanesbæ á Ljósanótt. Við tökum þátt í Reykjanesmaraþoni og þannig er það bara. Gabríel var ekkert að malda í móinn, var alveg til í að hlaupa 3,5 km. En það var eitthvað aðeins öðruvísi núna, hann var mjög mikið að spá í leiðina, þannig að við keyrðum með hann hringinn fyrir hlaup. Hann var eitthvað voða spenntur, 'Mamma, mamma, þú verður að festa númerið fyrir mig'. Hann var í síðum íþróttabuxum og var ekki á því að fara í stuttbuxur. 'Mamma, mamma, þurfum við ekki að fara út núna'... Við vorum eitthvað að væflast og ég að gera mig klára í að hita upp þegar dóttir vinafólks okkar kom að og ég stakk upp á að þau myndu hita upp saman, sem þau og gerðu. Eftir upphitun sá minn maður að hann myndi kafna í öllum þessum fötum, fór í stuttbuxur og bol.
Við Þórólfur vorum ræst aðeins á undan skemmtiskokkinu, afi og Lilja fylgdust með fyrir okkar hönd. Þegar ég kom í mark eftir mitt hlaup og náði andanum aftur, þá sá ég annan pilt en ég hafði skilið við. Hann labbaði svona 10 cm fyrir ofan jörðina, brosti hringinn og stökk upp um hálsinn á mér og hvíslaði: 'Mamma, ég vann!'. Hann hljóp 3,5 km á 15:32, lang fyrstur. Hann fékk gullpening í verðlaun og pizzuveislu fyrir fjölskylduna.
En það sem gerðist eftir þetta hlaup er það sem ég er svo glöð með. 'Mamma, kannski næst þegar þú ferð í keppnishlaup, má ég þá koma með?'. Og svo í síðustu viku þegar ég kom heim úr vinnunni hljóp heldur betur glaður strákur á móti mér, 'Mamma, Norræna skólahlaupið var í dag og ég hljóp 10 km á 51:06 og var fyrstur (5., 6. og 7. bekkur)!!!'. Svo fékk ég alla sólarsöguna um hvernig þeir voru þrír sem leiddu hlaupið fyrstu 5 km, þá fóru hinir tveir að dragast aftur úr og svo þegar km var eftir þá kom annar þeirra í hælana á honum. Hvernig hann hefði beðið rólegur með að taka endasprettinn þangað til það voru ca. 400 m eftir, sett allt á fullt en þá átti hinn ekki séns...
Þetta er komið, ég á lítinn hlaupara .
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vá flottur strákurinn þinn! Takk fyrir að leyfa mér að fá að fylgjast áfram með blogginu þínu. Haltu áfram að vera svona jákvæð það er víst nóg af hinu, það veit ég!!
Kv.Hildur
Hildur (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 09:49
Vá, geðveikt. Til lukku með hann. Ég vona að ég nái mínum í þetta.
Ásta (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 12:25
Frábær árangur hjá honum! Til hamingju með hann! :)
Helen (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 14:11
Frábært hjá stráknum..til lukku með hann
Takk Eva mín fyrir aðganginn að blogginu og takk fyrir síðast
Kv. Bubba Sigurvegari
Bubba (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 16:23
Hi skvís hjartanlega til hamingju með drenginn, það eina sem við getum gert til að fá börnin með okkur er að vera góð fyrirmynd, ég lifi alla vega í þeirri trú og reyni að sýna mínum börnum hvað hlaupin eru góð á alla "kanta". Takk fyrir lykilorðið, og leyfa mér að eiga hlutdeild í hugsunum þínum. kv. Erna
Erna Hlín (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 20:37
Takk, takk og velkomin :)
Við Gabríel ætlum að fara í 5 km Saucony hlaupið annað kvöld, allir að mæta!
Eva Margrét Einarsdóttir, 16.9.2009 kl. 12:50
Þvílíkur sigur hjá Gabríel. Bæði á Reykjanesi og samt aðallega hugarfarsbreytingin. Frábærir tímar hjá honum í keppnunum báðum. Hann kemur sterkur inn. Hlakka til að sjá hvað hann gerir í kvöld.
Alma María (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.