29.9.2009 | 10:58
Sprettir, meiri sprettir og þrek
Hreyfði mig fyrir allan peninginn í gær. Hjólaði í og úr vinnu en það eru rétt tæpir 15 km samtals. Í hádeginu þá var sprettæfing hjá vinkonu minni sem er á sub 50 prógramminu. Það og brjálæðislega gott veður gerðu það að verkum að ég stóðst ekki freistinguna, varð að komast út og viðra mig, gat þá í leiðinni aðstoðað við sprettina. 8 km lágu í valnum, þar af 5 á 4:40 pace.
Sprettæfing hjá ÍR beint eftir vinnu, 5 km upphitun, 6 * 600 m sprettir á grasinu í Laugardalnum (enduðu upp brekku...) með tæplega mínútu labbi á milli. ERFITT. Hrikalega gaman að æfa með svona góðum stelpum, það er ekkert gefið eftir og maður þarf að hafa sig allan við að halda í við þær! Eftir sprettina var farið í þrekhring 3 * (10 froskahopp/10 bangsahopp/20 magaæfingar/10 armbeygjur), sprett á milli stöðva. Eftir þetta lufsuðumst við hjónin smá hring í Laugardalnum áður en við kvöddum hópinn og komum okkur heim. Dagurinn gerði þá tæplega 15 km hjól og rúmlega 20 km hlaup.
Ég var búin að taka út fisk í matinn og það var ekkert verið að krúttast við að elda, henti bara fisknum í pott, hann sauð á meðan ég fór í sturtu og svo var gúffað eins og villimaður. Þegar fór að róast hjá okkur og litla skottið komin í rúmið bakaði ég tvö (lífsnauðsynleg) All Bran brauð því ég sé fram á að með áframhaldi á þessu æfingaálagi þá þarf ég að bæta aðeins við næringuna.
Dásamlegt að kúra í sófanum eftir langan dag, með Gabríel á lærinu, prjónana í höndunum og rauðvínstár innan seilingar... Þórólfur var að mála annars hefði hann verið hjá okkur .
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert ekkert smá dugleg en er með eina spurning, hvað eru bangsahopp?
Snjólaug (IP-tala skráð) 29.9.2009 kl. 11:13
Þá stendur maður aðeins gleiður og beygir sig niður, snertir jörðina með höndunum og hoppar svo upp og teygir hendurnar út/upp...mjög bangsalegt .
Eva Margrét Einarsdóttir, 29.9.2009 kl. 12:11
hmm.. væriru til í að deila þessari all-bran brauðs uppskrift með mér ?
kv.
Helen
Helen (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.