19.10.2009 | 09:12
Heiðmerkurtvíþraut 2009
Var bara nokkuð spræk eftir Víðavangshlaupið og til í aðra lotu á sunnudagsmorguninn. Veðrið var bara gott miðað við fyrri ár, ekki mikill vindur. Við fengum nokkrar góðar hellidembur á okkur á leiðinni en þess á milli glennti sólin sig.
Ég er alltaf með í tvíþrautinni þegar ég get, þetta er ótrúlega skemmtileg keppni (4 km hlaup - 15 km hjól - 4 km hlaup) og eina sem vantar er að fleiri konur taki sig til og mæti. Í gær mættu 12 karlar og tvær konur til leiks. Þrautin gekk vel, ég var bara ánægð með formið, var að bæta tímann minn um ca. 1 og 1/2 mínútu. Ég var ekki með neina klukku í þetta sinn og er ekki frá því að það sé bara þægilegra. Ég hef líka yfirleitt skipt um pedala á hjólinu mínu til að þurfa ekki að skipta um skó en ég nennti því ekki í þetta sinn, tók þetta bara sem æfingu í skiptingum í leiðinni. Ég fann mikinn mun á hjólaleggnum, yfirleitt hafa karlarnir verið að taka mig í nefið þar en ekki í þetta sinn, hélt mínu sæti eftir hlaupið. Ég varð 9. í heildina á 1:13:14, fyrst kvenna, hérna eru annars úrslitin.
Hérna er mynd af hópnum sem hún Alma tók. Á hana vantar Hákon Hrafn sem varð 2. í heildina.
Við Gabríel fórum svo á bæjarrölt saman seinnipartinn. Byrjuðum á að kíkja á DVD markað, fórum svo í Kolaportið, kaffihús og enduðum í Kringlunni. Gabríel var með hluta af afmælispeningnum sínum með sér og það var fyndið að sjá hvað hann pældi mikið í hvort það væri þess virði að eyða honum í hitt og þetta. Hann var t.d. ekki til í að kaupa DVD mynd á 1000 kr. fyrir sína peninga. Hann keypti sér tvo skammta af hákarli á 150 kr. í Kolaportinu sem hann gúffaði í sig af bestu lyst. Bestu kaupin voru samt hrikalega flottir fótboltaskór sem við fundum á spottprís í Útilíf. Þegar hann var búin að kaupa þá var samþykkt að setja restina af peningunum í bankann .
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
til hamingju með þrautina skvís :)
verð að koma á framfæri afsökun minni sem konu í þessum geira hehe ;) er nefninlega meidd á fæti og á ekki að vera að hlaupa, fer í liðþófaaðgerð í nóvember :o/
María Ögn (IP-tala skráð) 19.10.2009 kl. 10:52
Já saknaði þín svo sannarlega! Leiðinlegt að heyra með meiðslin en ég veit þú ert skynsöm og kemur þér í toppform á ný . Gangi þér vel og sjáumst alla vega í prjónaklúbbi ef ekki á brautinni!
Eva Margrét Einarsdóttir, 19.10.2009 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.