Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
12.1.2009 | 11:11
Fullkominn dagur?
Sumir dagar eru bara þannig að allt er eins og það best getur orðið. Sunnudagurinn var akkúrat þannig dagur. Litla skottið okkar svaf óvenju lengi. Við drifum okkur á lappir rétt um átta, smá hafragrautur og svo var mamma mætt á svæðið að passa ungana okkar meðan við fórum út að hlaupa.
Hlupum inn í Elliðaárdal í rólegheitunum og fórum öfugan Powerade. Heilmikil hálka á leiðinni svo það var ennþá meiri ástæða að taka því rólega og njóta þess bara að vera úti í góða veðrinu. Við hjónin leystum eina til tvær lífsgátur í leiðinni á þessum 16 km.
Fórum beint í sund í Árbæjarlaugina með hana Lilju okkar, Gabríel fór í heimsókn til ömmu og afa á meðan. Lilja fór með pabba sínum í klefann í þetta skiptið og var rosalega dugleg. Hún verður áræðnari með hverju skiptinu sem við förum, er alveg farin að bjarga sér með armkútana og finnst þetta svoooo gaman.
Náðum okkur í smá kríu eftir sundið á meðan Lilja lagði sig. Þórólfur pumpaði í dekkin á hjólinu hans Gabríels og hann hjólaði í afmæli til vinar síns. Þvínæst ryksugaði Þórólfur bílinn og ég fór í smá tölvustúss fyrir tengdapabba. Þórólfur og Lilja fóru síðan í heimsókn til afa og ömmu í Garðabæ, á meðan dundaði ég mér við að strauja (í fyrsta sinn í marga mánuði) allar skyrturnar mínar. Maður getur afkastað ótrúlega miklu þegar maður er bara einn með sjálfum sér, skipti um á rúminu hennar Lilju, bakaði pestóbrauðið hennar Elínar og hafrakökurnar góðu í framhaldi.
Lilja gerði sér síðan lítið fyrir og kúkaði í klósettið í fyrsta skipti á ævinni! Það brutust út þvílík fagnaðarlæti meðal annarra fjölskyldumeðlima og þeim ætlaði aldrei að linna, fimmfalt húrra fyrir Lilju.
Kvöldmatur, tannburstun, knús og kósíheit fyrir svefninn og krílinu komið í bólið. Ég ryksugaði á meðan strákarnir flokkuðu flöskur og dósir fyrir Sorpu. Við Þórólfur kíktum aðeins á CSI áður en við læddumst inn í rúm (já já klukkan tíu). Þar beið mín ein af mínum uppáhaldsbókum í þessum heimi, The Road Less Travelled, en ég fékk hana lánaða fyrir vinkonu mína og stenst ekki freistinguna, ætla að rúlla í gegnum hana fyrst sjálf.
Finnst ég hafa gert alveg ótrúlega mikið á einum degi. Það sem er best samt er að þetta var allt einhvern veginn svo létt og í góðu jafnvægi. Krakkarnir voru góð við hvort annað og við líka. Ég var bara alveg mátulega þreytt að degi loknum enda gaf ég mér líka tíma í að leggja mig og slaka á, inn á milli og ekkert stress. Fullkominn dagur? Svei mér þá ég bið ekki um meira.
Pælingar | Breytt 24.9.2009 kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2009 | 20:23
Laugavegurinn 2009
Ég er ekkert smá ánægð með vinnufélaga mína. Í dag vorum við orðin 6 í minni deild sem erum búin að staðfesta þáttöku í Laugavegshlaupinu 2009. Þið þarna úti sem ætlið að fara og eruð ekki búin að skrá ykkur, sá síðasti sem skráði sig í dag hjá okkur var númer 86...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2009 | 10:46
Með morgunkaffinu :)
Við Bibba skiptum fjölmiðlunum bróðurlega á milli okkar. Hérna er smá umfjöllun í Fréttablaðinu í morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2009 | 21:05
Hlaup hér, hlaup þar og hlaup alls staðar... lallalalla...
Í dag var 12. hlaupadagurinn minn í röð en það geri ég ekki oft. Það var engin ástæða fyrir því önnur en að mig langaði bara út að hlaupa og var í fríi. Samtals gerði jólafríið 130 km og ekki gramm upp í vigt þrátt fyrir veislur á veislur ofan, ljúft. Tók út statistikk úr hlaupadagbókinni fyrir árið 2008.
- Hljóp 2929 km
- Hljóp 275 daga á árinu
Þetta var frábært hlaupaár fyrir mig, bætti mig í öllum vegalengdum og náði settum markmiðum í 5 km, maraþoni og á Laugaveginum.
Undir 40 í 10 og undir 1:30 í hálfu erfast bara yfir á 2009 .
Hlaup | Breytt 24.9.2009 kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.1.2009 | 08:46
Tveggja ára!
Elsku stelpan okkar, til hamingju með daginn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.1.2009 | 17:05
Eftirminnilegasta augnablikið mitt 2008
Fyndið | Breytt 24.9.2009 kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar