28.7.2008 | 10:56
Sveitasæla
Fórum að dæmi Gabríels og stungum af í sveitina líka, þ.e. í sumarbústaðinn. Drifum okkur beint eftir vinnu á föstudaginn, vorum innan við klukkutíma að pakka og koma okkur af stað. Sundferðir, róló, ísbíltúrar, hádegisblundur með skvísunni, góður matur, prjónaskapur, rauðvínstár og ogguponsulítið nammi (yeah right...).
Fékk hlaupalöngunina aftur á sunnudaginn og skokkaði af stað í blíðviðrinu. Hljóp fyrst út á glofvöll og þegar þangað var komið datt mér í hug að tékka á því hvort ég myndi drífa að Kerinu, hver veit, gæti verið síðasti séns að skoða það alveg ókeypis... Gekk eins og í sögu, var á undan umferðinni á þjóðveginum og æðislegt að hlaupa í þessu umhverfi. Fór niður að vatninu á botni Kersins í fyrsta sinn og hljóp svo hringinn í kringum það áður en ég skokkaði aftur upp í bústað.
Lilja nýtur þess að vera í sveitinni, sefur klukkutíma lengur á morgnana en heima hjá sér við miklar vinsældir foreldranna! Hún fékk líka að spranga heilmikið um bellarass í blíðunni og eftir að hafa sprænt pínulítið á tærnar á sér var hún til í að pissa í koppinn sinn og gerði það með miklum sóma, ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna og svo var skrúðganga með koppinn inn á klósett þar sem Lilja fékk að tæma hann og sturta niður alveg sjálf!
Við hjónin skelltum okkur svo í bíó í gærkvöldi á Batman, The Dark Knight. Stóðst svo sannarlegaallar væntingar.
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir mig í gær...mjö mjö mjö gott! Og gallabuxurnar flottar!
Sóla (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 10:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.