25.7.2008 | 12:41
Sveitalíf
Hrökk upp við símann klukkan hálf tólf í gærkvöldi (já, já vorum löngu sofnuð...) og sé að þetta er númerið hjá Sverri. Smá í magann. Ég svara og heyri titrandi röddina í Gabríel kalla 'Mamma, mamma...'. Mikill hjartsláttur. 'Mamma, ég var að veiða með Sverri frænda og ég fékk 8 punda lax og ég er að fara að bíta uggann af honum. Mamma, þetta er Maríulaxinn minn!!!'.
Allir ætla að vera með í Jökulsárhlaupinu og í gær var ég með smá fiðring, æiii það væri nú gaman að vera með. Svo heyrði ég í Orra bróður og hann ætlar að hlaupa líka... Fór með Þórólfi út að skokka eftir vinnu og prísaði mig sæla að komast litla hringinn minn skammlaust og öll löngun í 30 km + hlaup rauk út í veður og vind. Tókum svo aðeins á því í salnum á eftir, aðeins að lyfta, magaæfingar og svoleiðis. Endaði á upphífingum og nú ætla ég að verða góð í þeim. Kreisti út úr mér 22 upphífingar í þrem settum, stefnan sett á 20 í einu.
Tenglar
Skapandi skrif
- Gjöfin Gjöfin
- Litlu leyndarmálin Litlu leyndarmálin
Hitt og þetta...
- Fyrir myndir... Einu sinni var
- Afrekin mín Þetta getur maður...
- Afrekin hans Þórólfs Þetta getur kallinn...
- Afrekin hans Gabríels Þetta getur guttinn...
- Afrekin hennar Lilju Afrekin hennar Lilju
- VO2 MAX Mæling í þrekprófi - Apríl 2006
- Gamla bloggið mitt Í denn...
Hlaup
- Búdapest Maraþon 2003 Fyrsta maraþonið mitt
- Laugavegurinn 2005
- Reykjavíkur Maraþon 2005 Annað maraþonið mitt...
- Glitnir Copenhagen Marathon 2008
- Laugavegurinn 2008 Laugavegurinn 2008
- Almost Famous
- Viðtal í 24 Stundum Viðtal í 24 Stundum
- Viðtal í Fréttablaðinu Viðtal í Fréttablaðinu
Þríþraut
- Ultra IronMan ÞRÍH Ultra IronMan ÞRÍH
- Þríþrautafélag Reykjavíkur Þríþrautafélag Reykjavíkur
Hinir...
vitleysingarnir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
22 upphífingar! Vá, ég held að ég geti 1/3 úr upphífingu
Agga, 25.7.2008 kl. 13:47
Mínar upphífingar eru þannig að ég fer með hökuna upp fyrir stöng og slaka niður fyrir 90 gráður með olbogana áður en ég hífi mig upp aftur. Bara svo allt sé á tæru og ég verði ekki kærð fyrir ýkjur...
Eva Margrét Einarsdóttir, 25.7.2008 kl. 15:37
Eva mín það gleymir enginn upphífingum þínum í Austurbæjarskóla hérna um árið með NFR þetta er bara þannig að þetta liggur svona misjafnlega fyrir mönnum.
Fjóla Þorleifs (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 22:41
Það var nú gaman hjá okkur í NFR...
Eva Margrét Einarsdóttir, 28.7.2008 kl. 09:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.