Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Powerade #5

Það var aldrei spurning um annað en að hlaupa á broddunum í Powerade í gær.  Ég er búin að komast að því að ég er frekar dettin á hlaupum svo ekki veitir af í svona færi.  Veðrið var fínt, gott að hlaupa í rigningunni og bara gaman að koma að klakabreiðunum og láta sig vaða yfir áhyggjulaus. 

Tíminn var bara fínn miðað við aðstæður 42:40 og líðanin toppur, fann ekkert fyrir þessu hlaupi sem er gott því síðustu tvö hlaup voru ekki alveg nógu skemmtileg.  Finn að allar þessar löngu æfingar eru að skila sér í meiri krafti og úthaldi síðasta hlutann.  Lap tímarnir mínir voru flestir í á milli 4:05 og 4:10, 9. km á 4:52 og 10 á 4:20.  

Aldrei þessu vant var Liljan okkar eitthvað óróleg og vaknaði þegar við komum heim og vildi ekki fara að sofa strax aftur.  Við náðum henni nú niður þegar við fórum í bólið sjálf en svo vaknaði hún aftur um miðja nótt og þurfti smá hugg og knús.  Enn ein tönnin alveg að koma, grunar að það sé málið.  Maður er orðin svo góðu vanur að við hjónin ætluðum aldrei að sofna aftur þegar hún komst í ró og vorum hálf drusluleg í morgun.

00000074

Framundan er afmælispartý hjá honum Bensa, hans Badda bróður.  Súpa og gúmmelaði á eftir.  Eins gott að hlaða vel fyrir helgina og koma sér í sprett gírinn.


Myndir

Fengum myndirnar á netinu í gær og svei mér þá, þetta eru bara fínustu myndir!

Smá sýnishorn...

00000004

          

 

 

       


Brosa meira

Fórum í fjölskyldumyndatöku í gær, má ég frekar biðja um tanntöku...  Við höfum aldrei farið í svona myndatöku með börnin og renndum blint í sjóinn.  Einhver mælti með þessari stofu og við létum vaða.  Tókum með spariföt á krakkana og Gabríel fór með fótboltagallann sinn.  Áður en við lögðum í hann vorum við að spá í að taka eitthvað dót fyrir Lilju en ég sagði að það hlyti að vera fullt af nýju dóti á staðnum sem væri miklu skemmtilegra en gamla dótið.

Við mættum á staðinn og við fyrstu sýn virtist þetta ekki mjög spennandi og ekki skánaði það.  Krakkarnir máttu bara standa á smá svæði innan um fullt af ljósum og svo voru tveir gamlir tréstólar sem hann myndaði þau í til skiptis.  Ljósmyndaranum var fyrirmunað að muna hvað krakkarnir hétu og kallaði sífell 'Stóri strákur brostu meira, líttu hingað' eða 'Stelpa vertu kyrr, ekki með höndina í munninum...'.  Þegar Lilja var alveg að gefast upp á þessu öllu saman dró gaurinn fram bangsa og veifaði framan í hana, 'Stelpa, sjáðu bangsann!!!'.  Ekki spennandi.

Við vorum þeirri stundu fegnust þegar við komust út aftur.  Verður spennandi að sjá hvernig myndirnar koma út en eitt er víst að við reynum eitthvað annað næst. 

DSC05729 

Fór út á sleða með stráknum mínum og hljóp litla hringinn minn í gærkvöldi.  Agga og Andri komu svo í kvöldkaffi.  Gaman.


Komin tími til að kanna nýjar slóðir

Eftir þær miklu hamfarir sem hafa dunið yfir á blog.central.is þá var komin tími til að taka stökkið og láta vaða yfir á ókunnar slóðir.  Tel mig reyndar hafa haft órtrúlega mikla þolinmæði og langlundargeð í þessum samskiptum...  En nýtt upphaf á nýjum stað, gott mál.  Framundan er spennandi vika með Powerade og MÍ öldunga um helgina.


« Fyrri síða

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband