Leita í fréttum mbl.is

Bring it on

Lilja litla er að skríða saman.   Var heima í dag hjá ömmu og pabba sínum til skiptis til að ná upp aðeins meira þreki áður en hún fer aftur til dagmömmu.

Það er alveg tjúllað að gera hjá mér í vinnunni og verður út þennan mánuð.  Hafði yfirdrifið að gera fyrir en í dag fengum við fréttir um að þriðji maður í stóru verkefni sem við erum að vinna að er dottinn út... Eftir smá 'jæks' tilfinningu þá breytti maður í 'Bring it on' gírinn Cool.  Ég er ekki til sölu utan venjulegs vinnutíma svo í rauninni eru bara hægt að þétta dagana, ég bæti ekki við mig á annan hátt.

Æfingarnar fyrir Köben ganga eins og í sögu, tökum næstu 3 æfingar og hristum upp í þeim milli daga.  Planið segir fimmtudagur tempó, laugardagur 35 km og sunnudagur 10 km.  Við ætlum að fara 10 á morgun, keppa í Flóahlaupinu á laugardaginn og fara langt á sunnudag. 

Milli æfinga látum við okkur ekki leiðast, ársfagnaður Glitnis verður haldin með pompi og pragt á laugardagskvöld.  Eins og ég segi.... Bring it on W00t.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Eva.  Veistu nokkuð hvar ég get nálgast töflu sem sýnir level á bretti = tíma í 10 km.   ég skal reyna að vera hnitmiðaðri.  segjum að ég hlaupi ´með stillt á ´10 á brettinu tekur það mig klukkutíma að fara 10. kílómetra.  En ef ég hleyp á 14 hvað tekur það mig langan tíma  ég veit að ég get reiknað það út en það tekur frú mig bara smá tíma.   Gangi þér vel, ég held alltaf áfram að lesa bloggið ykkar Bibbu og Öggu.  kveðja guðrún helga

guðrún Helga (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 11:54

2 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Já hérna er t.d. pace calculator:  http://www.marathonguide.com/fitnesscalcs/pacecalc.cfm

  • Þú slært þá inn 1:00:00 í tíma (ein klukkustund)
  • 14 km (vegalengd)
  • og færð út pace per km =  Your pace is: 04:17.1 per kilometer

Hérna er svo linkur á fleiri svona skemmtilegar reiknivélar:

http://www.marathonguide.com/fitnesscalcs/index.cfm

Eva Margrét Einarsdóttir, 11.4.2008 kl. 14:01

3 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

p.s. svo getur þú reyndar séð þetta á brettinu þegar þú ert að stilla hraðann, þá sýnir það paceið rétt á meðan.

Eva Margrét Einarsdóttir, 11.4.2008 kl. 14:03

4 identicon

takk kærlega fyrir  . ég kíki á þetta.  Gangi þér vel!!!!

Guðrún Helga (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband