Leita í fréttum mbl.is

Toppurinn á tilverunni

Ætla að brenna gærdaginn á harða diskinn í kollinum mínum og minnast hans þegar ég er orðin eldgömul rúsína.

Sex mánaða uppgjör í vigtun fór á þann veg að við Bibba vorum þær einu sem stóðust mætingaskylduna (maður má bara missa úr eina vigtun til að geta unnið til verðlauna), vorum með 100% mætingu.  Náði að vinna þessa lotu á þrautsegjunni því það verður að viðurkennast að Jóhanna, Agga og meira að segja nýjasti meðlimurinn, hún Vala, hafa allar skilað inn betri árangri á þessu tímabili í einstaka vigtun.  Vala gerði sér nú lítið fyrir og var með 0 í frávik í sinni fyrstu vigtun, keppnin fer á nýtt stig í næstu lotu, það verður barist til síðasta gramms...

Þær sem gátu, komu á Garðinn í hádeginu og svo mætti allt gengið, vigtunar- og Glennuskvísur í rauðvín og gúmmelaði ala Þórólfur til okkar á Dyngjuveginn.  Strákarnir mínir forðuðu sér í bíó á meðan við stelpurnar leystum lífsgáturnar og röðuðum í okkur góðgætinu með tilheyrandi.  Þórólfur festi svo herlegheitin (okkur) á filmu í lok kvölds, voilà...

Skvísur

Agga, Vala, Bibba, Ásta, Sóla, Jóhanna, Sigrún og frúin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ooooo hvað við erum sætar! Gott samt að myndin er ekkert mjög skýr. Takk fyrir rauðvínið og kökurnar og múffurnar! Spáðu samt í hvað þetta eru lélegar konur. Sjö konur kláruðu EINA rauðvínsflösku!

Sóla (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 11:14

2 Smámynd: Agga

Já össs, en við átum þó þess meira af gúmmulaðinu. Takk fyrir mig ... og á nýju tímabili verður mætt í hverja einustu vigtun, það er ekki hægt að vera að falla svona á mætingu!

Agga, 19.9.2008 kl. 11:48

3 identicon

Bibba (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 14:10

4 identicon

Já, gott að myndin er ekki stærri segi ég nú! Takk fyrir góðar veitingar og gott rauðvín. Djö...skal ég taka KUSKIÐ og rústa henni á næsta tímabili:-) Skál!

Sigrún (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 20:24

5 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Takk fyrir lagið Bibba.  Nákvæmlega!

Eva Margrét Einarsdóttir, 19.9.2008 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband