Leita í fréttum mbl.is

Níu mánuðir - 4. hluti

Þórólfur sat í sófanum í setustofunni á herberginu okkar með fimm síðustu vísbendingarnar fyrir framan sig í umslögum.  Ég sat á móti honum með vídeókameruna.

5. vísbending – Mynd af hlaupurum.  6. vísbending – Mynd af kínahverfi.  7. vísbending – Mynd af lítilli þyrlu.  'Hvað ertu eiginlega að bralla, Eva?'  

8. vísbending – Mynd af konu á leið upp í flugvél og passarnir okkar.  'Eva!!!'  Á þessum tímapunkti var ég komin með nett taugaáfall, skalf og hristist og var næstum farin að grenja...  9. vísbending – Mynd a Manhattan skyline, Empire State og Frelsisstyttunni...

'Annað hvort erum við að fara að horfa á bíómynd um New York... með passana okkar... eða við erum að fara til New York...'

'Hversu vel þekkirðu konuna þína, Þórólfur?  Hvort finnst þér líklegra?'

Smá þögn...  'Það er nú aldrei neitt hálfkák hjá þér...  VIÐ ERUM AÐ FARA TIL NEW YORK!!!'

Þremur tímum seinna sátum við um borð í vélinni og lögðum í ævintýraferð lífs okkar (hingað til J)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var gaman að sjá þetta allt saman á vídeói í gær í vídeóTÆKINU mínu :-)

Sóla (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 11:06

2 identicon

Þú er lang sætust !

Guðrún Lauga (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband