Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Sagan öll...

Á laugardagskvöldið var allt klárt hjá mér.  Ég var búin að útbúa tékklista út frá þríþrautarbókinni góðu og pakkaði niður eftir honum.   Ég var búin að hugsa þrautina alla leið og ímynda mér hvað ég þyrfti á hverjum stað og pakkaði í nokkra mismundani poka samkvæmt því.  Svaf bara vel og vaknaði spræk klukkan 6:30 og tók hefðbundna maraþonrútínu, ristaða beyglu með hnetusmjöri og sultu, tvö glös af vatni og kaffibolli.  Lagði af stað að heiman fyrir átta, keyrði í rólegheitum og hafði nógan tíma til að koma dótinu mínu fyrir í röð og reglu þar sem það átti að vera.

Sund: Eftir æfingarnar síðustu daga var ég orðin alveg pollróleg yfir sundinu.  Ég hafði í upphafi vikunnar áætlað sundtíma u.þ.b. 48 mínútúr en sá á æfingum að ég ætti að geta farið eitthvað hraðar og var á keppnisdegi farin að vonast eftir að klára sundið á 45 mínútum.  Ég fann mig strax vel í lauginni og við Gummi sammæltumst um að synda fyrst 100 m hlið við hlið og sá sem væri þá á undan myndi leiða.  Ég notaði tímann í sundinu til að hugsa til skiptis eftir umferðum um þrjú atriði sem Bibba og Ásgeir bentu mér á: 1) Passa að horfa í botninn og þrýsta höfðinu niður til að búa til beina línu við hrygginn 2) Taka grynnri tök og passa að fylgja þeim eftir alla leið 3) Reyna að renna eins langt á milli sundtaka og ég gat.  Maður missir talninguna ótrúlega fljótt í svona sundi, eftir 5-600m og þá byrjaði ég bara að telja upp á nýtt, 5 ferðir og svo 3 og aftur 3...  Svo fór maður að vonast eftir flautunni góðu en teljararnir krjúpa niður að manni við síðasta snúning og blása eins og brjálaðir bananar í dómaraflautu til að láta vita að það sé ein ferð eftir.  Í bókinni góðu sagði að það væri skynsamlegt sprikla vel síðustu metrana í sundinu til að ná blóðflæði í lappirnar fyrir hjólið og síðustu 40-50 m buslaði ég sem mest ég mátti.  Ég var það spræk þegar ég kláraði að ég ákvað að vippa mér upp á bakkann á brautinni minni, í staðinn fyrir að synda að stiganum og hlaupa að skiptisvæðinu.  Tími í sundi: 43:20

Hjól:  Það tók mig 2:38 (T1) að skipta og koma mér af stað á hjólinu.  Ég lagði mikla áherslu á að lágmarka skiptitíma þar sem ég vissi að hinar konurnar voru allar betri í sundinu en ég.  Ég var búin að leggja allt dótið í rétta röð á handklæði og þurfti ekkert að hugsa, sokkar, skór, sólgleraugu, hjálmur, jakki og númer og út.  Ég var búin að kveikja á Garminum fyrir keppnina og var með hann í litlu hólfi á hjólinu , bara að ýta á start um leið og ég vippaði mér upp á hjólið.  Ég var innan við 10 km að ná fremstu konu og það var mjög góð tilfinning þar sem ég vissi að ég var sterkasti hlauparinn í hópnum.  Þegar ég var komin á beinu brautina setti ég á mig Garmin í rólegheitunum.  Ég var með tvö orkusúkkulaði með mér á hjólinu, eitt í litla hólfinu með garminum og hitt var ég búina að teipa á hjólið.  Ég var líka með einn brúsa af orkudrykk, einn af vatni  og eina túbu af geli.  Ég drakk vel á fyrsta hringnum á hjólinu og borðaði fyrsta stykkið.  Borðaði seinna stykkið á hring 3 (af 6) og drakk reglulega, fyrst orkuna og svo vatn.  Ég smakkaði aðeins á gelinu á hring 4 og 5 en mér fannst það frekar ógirnilegt og fann að ég var með nóg af orku.  Hjóla leggurinn var ótrúlega skemmtilegur, var ánægð með hraðann, átti nóga orku og alltaf jafn gaman að koma að skreiðarstæðunum þar sem starfsfólk og áhorfendur stóðu, stundum í hellidembu, með bros á vör, hvatningarhróp, banana (Bibba :) og drykki.  Ég á ekki orð að lýsa því hversu þakklát ég er, ég veit að ég á ennþá eftir að brosa yfir þessu, hundrað ára hrukkukerling, einhvers staðar að gera eitthvað skemmtilegt...   Fyrr en varði var ég komin á síðsta hring og um leið og maður var komin að snúningpunkti þá fannst manni þetta bara búið, bara að láta sig gossa niður að skiptisvæði og bingó.  Í bókinni góðu var mælt með því að létta um 1-2 gíra síðasta km, stíga hratt og létt til að fá líf í leggina fyrir hlaupið og það gerði ég.  Ég notaði líka allan síðasta hringinn á hjólinu til að kreppa og rétta úr tánum því þær verða anski kaldar og stífar í hjólaskónum.  Tími á hjóli: 3:07:43

Hlaup:  Skiptitími frá hjóli yfir í hlaup var 1:12 (T2).   Ég hef áður tekið þátt í tvíþrautum og hoppað af hjóli í hlaup.  Það er alltaf mjög óþægilegt að fara að hlaupa, maður veit það og bítur bara á jaxlinn þangað til það líður hjá.  Það tekur lærin svona hálfan km að komast í gang.  Ég var alveg 4-5 km að fá almennilega tilfinningu í tærnar aftur og að komast í góðan rythma.  Ég var að hlaupa á vel innan við 5:00 pace fyrstu km og var svo um og rétt yfir restina.  Fyrstu 10 km í hlaupinu liðu mjög hratt og svei mér þá ef það hvarflaði ekki að mér eitt stundarkorn að þetta væri nú ekkert svo mikið mál...  Næstu 5 km liðu mjög mikið hægar...  Síðustu 5 km voru bara ótrúlega lengi að líða og síðasta km lykkjan var barasta ekkert spes skemmtileg.  Það sem bjargaði gjörsamlega geðheilsunni í hlaupinu var enn og aftur ótrúlegt starfsfólk sem átti alltaf til einhver uppbyggileg orð og áhorfendur sem létu sig hafa það að koma í úrhellið til að hvetja.  Ef ég færi að telja alla upp sem hjálpuðu mér á þessum kafla þá væri þetta eins og allt of löng ræða á Óskarsverðlaunahátíð og svo væri ég í öngum mínum ef ég gleymdi einhverjum þess vegna ætla ég í staðinn að ráðast á alla sem ég næ í skottið á og knúsa þá í eigin persónu og segja þeim hversu mikils virði þeirra stuðningur var á þessum tíma.  Ég var innst inni fyrir þrautina að vonast eftir að hlaupa í kringum 1:45 (svipað og Ásgeir hennar Bibbu :) og það gekk upp.  Tími í hlaupi: 1:45:09

Við vorum 19 sem hófum keppni, 18 tókst að ljúka henni og ég var 7. í mark í heildina.  Ég setti nýtt Íslandsmet á 5:40:02 to bætti gamla metið um 33 mínútur.  Ég náði 10. besta tíma Íslendings en hingað til hafa 26 einstaklingar klárað Hálfan Járnkarl.  Já, ég er strax farin að hugsa um næsta og heilan Grin.

Eftirköst...  Ég var frekar slöpp í gærkvöldi, fékk bara að lufsast upp í sófa og þegar við fórum í bólið fann ég töluvert fyrir lærum og mjöðmum, stirð og stíf.  Ég var miklu betri í morgun, göngulagið bara nokkuð þokkafullt en var mest megnis í fyrsta og öðrum gír.  Fór í sund eftir vinnu, synti 500 m og slakaði svo á í heita pottinum í hálftíma og nú get ég sagt að ég finn nánast ekki fyrir þessu.

Hérna eru myndir af minni upplifun teknar af Sigrúnu Þöll, Ölmu og Þórólfi og hérna eru fleiri myndir sem Sigrún Þöll mín tók af keppninni.


Hálfur Járnkarl, check!

Þetta tókst og gekk reyndar alveg eins og í sögu.  Kláraði 1,9 km sund, 90 km hjól og 1/2 maraþon á 5:40:02 sem er nýtt Íslandsmet!   Meira síðar... Grin

IronMan2009 60

 


Tilbúin, viðbúin...

Nú er ég búin að gera allt klárt fyrir morgundaginn, nú er bara að reyna að slaka vel á í nótt og svo er bara að gera eins vel og maður getur.  Var alveg svakalega eirðarlaus í dag en nú er ég orðin pollróleg og hlakka bara til.  Allar hlýjar hugsanir vel þegnar milli 9 og 15. 

Í vikunni var haft samband við mig frá Mogganum vegna umfjöllunar um aukin hlaupaáhuga á Íslandi og hlaup.com.  Fékk alveg sérstaklega viðkunnalegan ljósmyndara í heimsókn, hann Ómar, og hann var svo sætur að senda mér nokkrar myndir í pósti.  Viðtalið verður svo birt fljótlega að mér skilst.  Vonandi að maður verði svona léttur á sér á hlaupunum á morgun...

 MG 2198 MG 2269

Síðasta æfingin

Þegar það var runnið upp fyrir mér að ég væri sannarlega að fara að taka þátt í hálfum Járnkarli þá flýtti ég mér að grafa upp þríþrautarbók sem við hjónin keyptum í New York ferðinni okkar í fyrra.  Í bókinni eru fleiri þríþrautar prógrömm bæði fyrir Ólympíska þríþraut og Iron Man.  Ég fann líka eitt prógram fyrir hálfan Iron Man en það var 18 vikur!   Ég smellti mér bara beint inn í viku 17 og er samviskusamlega búin að æfa eftir prógramminu í 9 daga Tounge

Ég náði líka að fara á tvær hjólaæfingar með HFR og var örugglega mjög pirrandi því ég notaði ALLAN tímann til að spyrja og spyrja meira...  Albert þjálfari er örugglega með þolinmóðari mönnum því hann var ekkert nema almennilegheitin og ráðlagði mér sem best hann gat. 

Sundið er klárlega mín veikasta hlið og þá leitaði ég til hennar Bibbu minnar.  Hún og Ásgeir tóku mig í einkaþjálfun um helgina og fínpússuðu það sem hægt var, svona einn tveir og þrír.  Ég er svo búin að vera meira og minna í sundi, mest til að ná því að slaka vel á og sannfæra sjálfa mig um að ég geti komist þessa 1900 m án mikilla átaka.  Bibba og Ásgeir voru líka svo sæt að lána mér allan þann þríþrautarútbúnað sem mig vantaði og miðluðu af reynslu sinni, en það hefur sannarlega skipt sköpum fyrir mig, takk!

Í dag voru síðustu æfingarnar mínar, 30 km hjól og 30 mínútna hlaup í morgun og svo synti ég 1000 m í kvöld.  Kroppurinn er í toppstandi, leið ljómandi vel á öllum æfingunum.

Nú sit ég hér og súpa Cabó Load, alveg tilbúin í að slaka aðeins á í tvo daga og hlakka til að takast á við enn eina áskorunina.  Ég er alveg laus við að vera stressuð núna, ég er eins vel undirbúin og hægt er, miðað við tíma, aldur og fyrri störf...  Þetta verður örugglega gaman!


Nú verður ekki aftur snúið

Orð eru til alls fyrst segir einhvers staðar.  Ekki grunaði mig samt að þegar ég missti það út úr mér í endorfínvímu eftir Powerade hlaup í vetur, að það væri kannski gaman að vera með í Hálfum Járnkarli í ágúst, að sú yrði raunin.  Gísli ritari var eins og 'kid in a candy store' um leið og ég var búin að missa þetta út úr mér og það var sama hvað ég reyndi að segja honum að þetta hefði nú bara verið grín hjá mér, hann var komin með stórhættulegan glampa í augun...

Svo veit ég ekki fyrr en nokkrum mánuðum seinna, þá hitti ég Stein sem segir að það sé nú alveg frábært að ég ætli að vera með í Hálfa Járnkarlinum...  Ha!!!  Nei, það var bara grín o.s.frv.

Nokkrum vikum seinna í símtal við Bibbu, 'Ætlar þú svo að vera með í Hálfa Járnkarlinum?'.  Neihhhhh....  Ja, Gísli var eitthvað að tala um það...

Á leiðinni til Akureyrar keyptum við racerinn hans Gísla, 'Þú verður þá pottþétt með í Hálfa, er það ekki?'   Humpfff.... 

Á Ísafirði í markinu á Óshlíðarhlaupinu hitti ég svo Gumma og Ölmu.  'Já, mín bara búin að skrá sig í Hálfa Járnkarlinn???'.  NEIIIIII!!!!   'Ja, þú ert alla vega skráð'.  Gísliiiiii....

Þegar við vorum í bústaðnum fyrir nákvæmlega viku síðan fórum við í sund á Selfossi og þar sem ég var eignilega alveg farin að geta rétt handlegginn alla leið upp yfir höfuð eftir viðbeinsbrot/brákið í hjólaslysinu mínu þá hvíslaði ég að Þórólfi; 'Ég ætti kannski að prófa hvort ég geti synt skriðsund...'.   Fram að þeirri stundu hafði ég samtals synt 250 m á síðasta ári, 100 m í nóvember og 150 m í maí (þar af 50 bringu Tounge).  Ég synti 500 m og fann ekki fyrir handleggnum.  Nákvæmlega á þeirri stundu fór að renna upp fyrir mér að það væri hugsanlega, mögulega, ef til vill örlög mín að keppa í Hálfum Járnkarli í Hafnarfirði 2009!


Nokkrar myndir úr fríinu okkar

IMG 1361

Kleópatra hans Orra bróður, kúrir hjá henni Lilju á Akureyri.

IMG 1463

Gabríel sýnir flotta takta í nýju takkaskónum í Hnífsdal. 

IMG 1461

Lilja súpermódel... 

Í Bjarkalundi

 Maður verður smá klikk af að búa í herberginu hennar Guggu í Bjarkalundi...

IMG 1532

Tjarnarferð er alltaf vinsæl

IMG 1539

Barbie sundlaugin sem var keypt á Lanzarote í góðærinu kemur að góðum notum út á svölum Wink

IMG 1541

Í Ömmu og Afa bústað í Öndverðanesi.   Gabríel og Sölvi vinur hans, sáu um matseldina einn daginn og elduðu fyrir okkur hakk og spagettí!

2009 07 Sumarfrí og Tvíþraut1

Einn daginn kíktum við á Töfragarðinn á Stokkseyri Smile


« Fyrri síða

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband