Leita í fréttum mbl.is

Afmæli

Einn af þessum frábæru dögum sem maður á.  Þann 7. maí 2002 fór ég í fyrsta skipti út að hlaupa eftir hvatningu frá henni Bibbu minni.  Síðan þá er ég búin að hlaupa 10.128 km!  Árið stefnir í algjört metár hjá mér bæði í km fjölda og í ár er ég búin að bæta mig í 5 km, 10 km og hálfu marþoni.

Samtals hlaupið  
  Hlaup Km
Samtals 2002 690
Samtals 2003 1488
Samtals 2004 1346
Samtals 2005 2244
Samtals 2006 1423
Samtals 2007 1776
Samtals 2008 1161
   
Frá upphafi 10129

Er svo glöð að við ákváðum að vera með í Icelandair hlaupinu í gær.  Við hlupum á maraþon pace og virkilega gott veganesti að finna hversu vel maður ræður við hraðann núna.  Missti mig aðeins í hérahlutverkinu...  Tek eina róandi næst Blush

En alla vega þá var hún Helga Árna að standa sig frábærlega og náði markmiðinu sínu, hljóp þetta með glæsibrag á 31:58 og hún fær að sjálfsögðu hrós dagsins.  Ótrúlegur nagli síðasta spölinn þegar þreytan var verulega farin að segja til sín, spólaði fram úr hverjum hlauparanum á fætur öðrum, með brjáluðu nasista kerlinguna gargandi sér við hlið.   You go girl!

ice08 img 5684  ice08 img 5967

Endaði kvöldið svo með Glennunum á myndakvöldi frá Boston.  Glennurnar eru náttúrulega bara snilld, dæs.   Þvílíkt saman safn af jólasveinum, þó víða væri leitað...  Much love my sistaz, get ekki beðið eftir næsta stóra Glennuþoni!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til lukku með hlaupa-afmælið!

Og vá, já, takk fyrir að draga mig áfram í gær. Úff, þú varst nú meiri vargurinn þarna síðustu 2 km   Þarna var ég mikið farin að sjá eftir því að hafa fengið að fylgja ykkur eftir!!! Alveg búin á því! En lokaspretturinn var skemmtilegur. Gaman að fá hvatninguna frá þér, og Sigrúnu. Held barasta ég mæli með þér sem Rekstrar-hlaupa-stjóra!! (Með fyrirvara um að fólk hafa andlegan þroska í að halda aftur af sér í að ráðast á hérann þegar maður er alveg búinn á því og e-r brosandi manneskja við hliðina á manni gargar á mann og skipar manni að fara fram úr næsta manni!!!)

Þúsund þakkir enn og aftur. Gaman að hafa náð þessu!!!! Íha!

Helga Árna (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 12:08

2 identicon

Já til hamingju með það og svo þessar frábæru myndir sem eru teknar af þér brosandi á endaspretti.   Ég var einmitt búin að panta þetta bros einhverntíma þegar þú mættir vera að ;)

Bibba (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 13:37

3 identicon

Til hammó með ammó! Frábær árangur hjá Helgu og geðveikt fyndið að sjá þig svona glaða í hlaupi :-)

Sóla (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 13:49

4 identicon

Fyrir þig Bibba mín, anytime (bara upptekin þann 18.  manstu...  )

Eva (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband