Leita í fréttum mbl.is

Spoke too soon...

Bleh, bleh, bleh ekkert mál að skokka upp og niður Esjuna...  Ég er með harðsperrur dauðans í lærunum, þær komu bara ekki fyrr en í gær og eru bara nokkuð kröftugar ennþá.

Karlinn minn er ekkert skárri en hann fór í Bootcamp með bróður sínum í vikunni.  Hann tók aðeins of vel á þvi, var svo fljótur að hlaupa að hann þurfti að gera armbeygjur og hnébeygjur meðan hinir kláruðu.  Getur varla burstað tennurnar  og í gær þá kallaði hann á mig inn í eldhús, þar stóð hann með vonleysis svip og tissjú í hendinni.  Lilja hafði sullað graut á gólfið...  'Ertu til í að þurrka þetta upp, get ekki beygt mig svona langt niður...' 

Annars er bara fjör í félagslífinu.  Skokkaði aðeins með Oddi vinnufélaga mínum og Glitnishópnum í gær eftir vinnu og fór  svo með mömmu í bíó, á 'Love in the time of cholera'.  Frábær kvöldstund með mömmu minni.  Í dag er óvissuferð með vinnunni, allt að gerast...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fékk líka þær rosalegustu harðsperrur í lærin sem um getur eftir fyrstu BootCamp æfinguna mína, en síðan ekki söguna meir  Innilega til hamingju með tímann í Köben - þú ert stjarna!

Guðrún Helga (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 13:48

2 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Úff, það var planið að ég færi með svilkonu minni í næstu vikur í Bootcamp, veit ekki hvort ég legg í það.  Ég er annars alveg að losna við Esju harðsperrurnar, passar akkúrat, næsta Esja annað kvöld

Eva Margrét Einarsdóttir, 31.5.2008 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband