Leita í fréttum mbl.is

Powerade í stormi

Hafði lítið gaman að þessu, mjög lítið! 

Hjakkaði þetta á eins 'þægilegu' pace og hægt var.  Hélt dauðahaldi í Pétur Ísleifs upp að efri brú, veit ekki hvar ég hefði endað annars, sennilega inná bás einhvers staðar. 

Hugsaði í fyrsta skipti um að hætta í keppnishlaupi.  Fauk hins vegar á þvílíkum hraða niður dalinn að ég átti svo sem engra kosta völ.  Var í samfloti við nokkra stóra og stæðilega karlmenn á tímabili, þegar rokið var í fangið hjökkuðust þeir fram úr mér, en þegar rokið var í bakið fauk ég eins og pappíssnifsi fram úr þeim aftur, mjög fyndið.  Rafstöðvarbrekkan var algjört horror.  Síðasta kílómeterinn var ég farin að blóta upphátt í kapp við hlaupafélaga minn. 

Þurfti að fá hjálp til að ná miðanum úr vasanum í markinu og gat ekki stoppað Garminn fyrr en ég komst inn, þá sagði hann 51:32 en reikna með að tíminn hafi verið ca. 49. 

Var nánast blind (smá ýkjur) eftir allt haglélið í augun og þegar ég kom upp í laug var ég góða stund að ná fókus á ný.  Eins og atriði úr hryllingsmynd að virða fyrir sér hríðskjálfandi, fjólubláa, berrassaða kroppa í hlandvolgum sturtunum.  Meira að segja potturinn sem aldrei klikkar á eftir var glataður, var með gæsahúð í vatninu og haglél í eyrunum. 

Fór ekki að birta yfir gömlu konunni aftur fyrr en hún var komin í stóru, hlýju kósípeysuna sína og ullarsokkana, með rauðvínstár í glænýju Ittala glasi heima í stofu (þar sem hún hefði betur verið!)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Guð, hvað þetta hefur verið gaman! Ég fékk bara rigningu og mótvind í þessari viku . Kveðja úr Vesturbæjarhópnum

Flosi Kristjánsson, 12.12.2008 kl. 13:28

2 identicon

Jæks... að lesa þessa lýsingu, þá er ég mjög sátt við að hafa haldið mig heimavið 

Sigrún (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 13:29

3 identicon

Woah!! Þú ert algjör hetja að hafa "druslast" þetta á 49 mínútum (góður tími fyrir marga í logni). En ég get rétt ímyndað mér að þetta hafi verið ógeðslega kalt því það var komin slydda í rigninguna/storminn/fárviðrið...eða hvað maður á að kalla þetta.

Sóla (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 14:08

4 Smámynd: Arnar Freyr Björnsson

Djöfulsins harka, ég þyrfti að fá soldinn skammt af henni hjá þér.

Arnar Freyr Björnsson, 12.12.2008 kl. 14:37

5 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Takk fyrir kveðjuna, Flosi.  Arnar, þú átt sko yfirdrifið af hörku sjálfur, það veit ég allt um, þarft bara að sleppa henni lausri :). 

Eva Margrét Einarsdóttir, 13.12.2008 kl. 09:00

6 identicon

Töff hjá þér.  Hefði alveg viljað vera með það er svo gaman eftir á :) Kúl tími í storminum

hvala (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband