Leita í fréttum mbl.is

Samanburður og rannsóknir

Ég er ekki Business Analysti fyrir ekki neitt og vinn við greiningar daginn út og inn...  Er búin að leggjast yfir hlaupið í gær og bera saman við síðasta 10 km hlaupið mitt og það er mjög fyndið að sjá munin á því hvernig ég hleyp, þegar ég hleyp eins og ég hleyp...  Og svo hvernig ég hleyp eins og einhver annar Tounge

Ármannshlaup 23.07.2009 en við fengum þá töluvert sterkan mótvind frá km 5 - 9:

Ármannshlaup

RM 22.08.2009:

RM

Fyrstu 3 km eru allt of hraðir fyrir mig, við erum komin 23 sek undir áætlun eftir 3, en jafnframt er mesta hækkunin í hlaupinu á 1. og 3. km.    Á 1. og 3. km fæ ég max pace 3:10 en það hef ég bara aldrei prófað áður svo ég viti til.  Km 4 og 5 eru svo aftur á móti nokkuð yfir goal pace þannig að við erum rétt undir áætlun eftir 5 km eða á 19:53 þegar ég kveð mína menn.

Nú er ég orðin spennt að sjá hvernig mér tekst til í Reykjanes maraþoninu og bera saman við þessar niðurstöður, en þar verður ekkert annað í boði en bæting n.b. Wink 

Annars fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvaða snilldar hugbúnað ég er að nota með Garminum þá heitir hann SportTracs.  Frítt á netinu, gargandi snilld!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Eva,

Ég held að það sé ekki gott að treysta um of á hraðann sem Garmin sýnir hverju sinni.  Ómögulegt að við höfum hlaupið á 3:10 hraða.  Mín tilfinning var að við hlupum á mjög jöfnum hraða á 4mín tempói eftir 1. km. 

mín splitt (tekin við keilurnar) -> 5sek yfir startlínu.  3:45; 3:59; 3:54; 4:10; 4:02 (19:57); 4:02; 4:07; 3:59; 4:00; 3:59.  

 Kv Biggi

Birgir Sævarsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 10:19

2 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Sæll Biggi og takk fyrir samfylgdina, úff þetta átti ALLS EKKI að vera þetta er allt hérunum að kenna pistill!!!  Mér fannst sko ekkert leiðinlegt að elta ykkur félagana, það gerði mér alveg örugglega gott og nýtist í næstu hlaupum.   Ég vil taka það skýrt fram, hefði átt að gera það hér að ofan, að ég var ekki að fara undir 40 í þessu hlaupi, hvorki með eða án héra!!! 

Það er líka engin spurning um að þið eigið að miða ykkar splitt við keilurnar, Garmurinn minn mælir hlaupið tæpum 100 m lengra og pípti rétt fyrir keilurnar. Já, ég er eiginlega alveg sammála þér með max pace-ið á Garminu, það eru engin skilyrði fyrir því að hraðanum sé haldið í ákveðin tíma þannig að það segir manni ekki svo mikið.  Í SportTracs forritinu sé ég að max pace er 3:23 en þar er skilyrði að hraðanum sé haldið í X langan tíma.   

Tilgangurinn með að skoða samanburðinn á þessum tveimur hlaupum er einungis ætlaður til þess að læra af, fyrir mig persónulega og hvernig ég næ að hámarka minn árangur.  Þar sem ég fæ ekki héraþjónustu á hverjum degi þá þarf ég að nota upplýsingarnar úr Garminum hjá mér.  Ég fór reyndar yfir fleiri hlaup og þau hlaup sem mér hefur gengið best í þá hleyp ég fyrstu 3 km örlítið yfir goal pace. 

Flott að fá splittin frá þér, mér sýnist Garmurinn og þín splitt vera nokkuð sambærileg á fyrstu 3 km 11:38 hjá þér vs. 11:37 hjá mér

Eva Margrét Einarsdóttir, 24.8.2009 kl. 11:45

3 identicon

Hæ Eva,

Ég tók þessu alls ekki illa :-).  Vildi bara nefna það við þig að festast ekki um of í Garmin pælingum.  En það er örugglega rétt að hlaupa örlítið hægar fyrstu 3km til að ná því besta úr sér í 10km.  Alveg sammála því.

Kv Biggi

Birgir Sævarsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband