Leita í fréttum mbl.is

Hérastubbur...

Hérahlaup Breiðabliks í dag og ekki spurning um að vera með fyrst við fengum svona æðislegt veður.  Planið var að hlaupa á eftir 4:00 héranum fyrstu 3 hringina (af 4) og sjá svo til með restina.  Alveg meðvituð um að síðasta vika hefur verið mjög strembin, keppnishlaup fyrir viku, 33 km fyrir 5 dögum, 8*800 m sprettæfing í fyrradag...   Ákvað að skilja bara garminn heima í þetta sinn, njóta þess að láta einhvern annan hugsa um pace.

Skotið reið af og ég sá strax að minn héri var eitthvað úti að aka.  Hann þaut af stað, að mér fannst allt of hratt og ég ákvað bara láta hann fara og hlusta á kroppinn minn.  Eftir 2 km fór ég fram úr stelpunum sem höfðu elt hérann frá byrjun og þær voru ansi þrekaðar þegar hér var komið en þær voru báðar að keppa í 5.  Kláraði fyrsta hringinn á 9:50 og þá var hérinn minn komin langt á undan.  Staðfesti það sem mig grunaði að hann var að fara allt of hratt.   Eftir 5 km sagði klukkan hjá mér akkúrat 20:00, eftir 7,5 var tíminn 30: 40 og ég endaði á 41:00 sem er minn besti tími, jeiii. 

Hérastubburinn sem gaf sig út fyrir að hlaupa á 4:00 pace endaði á ca. 38:30 og skilaði manninum mínum í mark á þessum fína tíma. 

Ég var náttúrulega mjög ánægð með að bæta mig og vinna hlaupið en...  Hlaup sem að gefur sig út fyrir og heitir Hérahlaup þarf að standa undir nafni og maður á að geta treyst því að héri sem gefur sig út fyrir að hlaupa á 4:00 geri það.  Fyrsti km hjá mínum héra var ca. 3:45, annar og þriði 3:50...  Meðalpace var 3:51 þegar upp var staðið og það er bara himinn og haf þarna á milli þegar maður er að þenja sig til hins ítrasta.  Ég viðraði þessar skoðanir mínar á staðnum og ég er viss um að þær verði teknar til athugunar. 

Hérahlaup

Annars hefur þessi vika einkennst af 'Wardrobe malfunctions' hjá mér.  Bumbubolurinn var bara byrjunin, í gær gleymdi ég að taka með mér hlaupadótið í vinnuna og þurfti að redda mér með einhverju dóti sem ég hafði skilið eftir í vinnunni og kaupa mér sokka í Europris eftir skokkið.   Í dag voru það aftur sokkarnir...  Lilja mín hafði eitthvað verið að taka til í sokkaskúffunni og í flýti þá hafði ég sett saman sem par, tvo hægri fótar sokka.  Það skiptir náttúrulega engu máli með venjulega sokka en þetta voru Injinji sokkar sem eru táslusokkar og þar af leiðandi eins og hanskar...   Ekkert annað að gera en að fara í sokkinn öfugan með hælinn uppá ristinni.  Allt er þegar þrennt er og geri ráð fyrir því að þessu tímabili sé lokið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir segja að ungbarnaforeldrar séu sérlega utan við sig :)
Þá væru góðu fréttirnar þær að það lagast eftir því sem Lilja stækkar.   Þangað til verður gaman að fylgjast með holningunni á þér ;)

Bibba (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 19:11

2 identicon

já og til hamingju með árangurinn í dag !!!

Bibba (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 19:12

3 identicon

Það þarf sko ekkert að eiga ungbarn til að vera utan við sig, mín eru 19 og 29 ára og ég er einmitt að ganga í gegnum svona tímabil núna ætli þetta sé ekki frekar að maður er búin að hlaupa frá sér allt vit þessa dagana og farin að trappa niður. Annars frábært hjá þér Eva til hamingju með bætinguna það styttist óðum að þú farir undir 40 mínúturnar.. Sammála þér með hérana maður verður að geta treyst að þeir séu á réttum hraða annars getur nú farið illa og maður sprungið á miðri leið ekki satt. Kveðja Hafdís

hafdís (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 10:00

4 identicon

Frábær bæting hjá þér enn eina ferðina og til hamingju með sigurinn! Ég skil nú ekkert hvað þú ert að kvarta yfir þessum héra, fínt að fara aðeins hraðar svona óvart :-)

Sóla (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 11:06

5 identicon

Til hamingju eina ferðina enn

Fjóla Þorleifsd (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 12:45

6 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Takk, takk!  Þetta er sko alveg viljandi að taka þetta í svona pínuskrefum,  smá svona Sergei Bubka...  og fá alltaf hrós í hvert skipti .

Eva Margrét Einarsdóttir, 3.5.2008 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband