Leita í fréttum mbl.is

Sveitalúðar

Við elskum að komast aðeins í burtu í sveitina.  Núna erum við í sumarbústað í Brekkuskógi og njótum lífsins í sólskini og skúraveðri.  Ótrúlega gott að hvíla sig og Lilja slær ný met í útsofi dag eftir dag.

Við höldum okkur nú samt alveg við efnið í hlaupunum og tókum til dæmis gæða æfingu í gær.  6 sinnum 1000 m upp og niður hæðóttan og holóttan sumarbústaðarveg í roki.  Þar sem það var frekar erfitt að halda einhverjum hraða þá ímyndaði ég mér að þetta myndi skila svona eins og Rocky æfing (þegar hann er að lyfta trjábolum og berja í kindaskrokka)....   Vann hann ekki örugglega?  Tounge

Ég þurfti reyndar að bregða mér í bæinn og er í þessu að undirbúa mig fyrir að halda annan fyrirlestur!!!  Það var nefnilega þannig að það var hringt í mig á föstudagsmorgun frá Rotary klúbb Gravarvogs og ég beðin að halda fyrirlestur hjá þeim í kvöld.  'Um hvað?' spurði ég.  Bara eitthvað til að peppa mannskapinn upp áður en við höldum inn í veturinn.  Ég var ekki einu sinni búin að halda fyrsta fyrirlesturinn minn... og ég sagði bara já. 

En svona höfum við það í sveitinni, það var leiðinlegt sjónvarp og við ákváðum að búa til kvöldvöku eins og ég mundi eftir í Kerlingarfjöllum í gamla daga.  Herna erum við mæðginin eða feðginin komin í gírinn...

DSC00229

Og svo nokkrar í viðbót...

collage


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hlustaði á fyrsta fyrirlesturinn þinn í Höllinni og þú stóðst þig frábærlega, einlæg og skemmtileg.  Þú ert alveg tilvalin í peppfyrirlestur þetta virkar allt svo einfalt og frábært hjá þeir.  Áfram Eva.

Silla (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 08:20

2 identicon

Ég missti af fyrirlestrinum vegna stórafmælis á föstudaginn, en ég alltaf að bíða eftir "gleðiorðunum tíu" á síðunni þinni.

Guðrún Helga (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 13:36

3 identicon

Þú ert pínu scary karlmaður

Ásta (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 12:04

4 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Maður er enginn aumingi sko, annars fannst mér sonur minn sérstaklega fallegur kvenmaður...

Eva Margrét Einarsdóttir, 30.8.2008 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband