Leita í fréttum mbl.is

Nú er ég svo aldeilis hissa...

Ótrúlegt en satt, maðurinn minn var að vinna úlpu frá 66° Norður í Helgarútgáfunni á Rás 2.  Hann tók þátt í einhverjum leik á netinu og það var hringt í hann í dag þegar við vorum að koma heim af hlaupunum.  Felix Bergsson tók smá viðtal við hann í leiðinni, það byrjar svona þegar rétt tæplega 3/4 af þættinum eru búnir.

Grin Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu farin að secreta fyrir hann líka? Hvernig væri nú að drattast til þess að secreta hásinina mína í lag líka??

Sóla (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 11:35

2 Smámynd: Eva Margrét Einarsdóttir

Elsku Sóla mín, ef ég gæti það nú þá væri ég löngu búin að því.  Grunnlögmál Secretsins er að þú getur bara Secretað fyrir sjálfan þig.  Það á við bæði um gott og vont.  Því meira sem ég hugsa fallega um hásinina þína því sterkari verður mín...  Eins ef maður hugsar illa til einhvers annars þá bítur það mann bara í rassinn.  Það er snilldin við þetta allt saman.  En varðandi alla þessa vinninga þá er það Þórólfur sem kenndi mér að vinna, það eina sem ég hafði nokkurn tíma unnið þangað til ég kynntist honum var 2. vinningur í bingó þegar ég var 11 ára.  Hann aftur á móti var alltaf að vinna eitthvað (og er).  Fór að skilja að þetta hafði eitthvað með hugarfar að gera, við bjuggum jú í sama húsi, borðuðum sama matinn, höfðum sömu áhugamál o.s.frv. 

Eva Margrét Einarsdóttir, 1.2.2009 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband