Leita í fréttum mbl.is

Að vanda valið

Á laugardaginn þegar ég var að skokka með manninum mínum við Ægissíðuna sagði ég upphátt í fyrsta sinn það sem hafði verið að gerjast í kollinum á mér í einhverja daga. 

'Þórólfur, ég held að ég ætli kannski ekki að hlaupa Laugaveginn í ár'.

Það var komin tími á að skipuleggja fyrir alvöru æfingarnar fyrir Laugaveginn og allt í einu rann upp fyrir mér að nú væri komið að því að stimpla sig út úr fjölskyldunni næstu mánuðina og það var bara ekki nógu spennandi tilhugsun.  

Fyrir nokkrum árum tók ég þá ákvörðun að hlaupa langt annað hvort ár og einbeita mér að styttri og hraðari hlaupum hitt árið.  Það voru margar ástæður fyrir því.  Ég held t.d. að ég eigi slatta bætingu inni í styttri hlaupunum, undir 40 og undir 1:30 markimiðin flögrar um í kollinum á mér.  Svo er það tíminn í æfingarnar.  Það fer svo miklu, miklu minni tími í að æfa fyrir stutt, sem þýðir svo miklu, miklu meiri tími með krökkunum mínum og fólkinum mínu.  Svo finnst mér líka hrikalega gaman að hlaupa hratt og maður gerir ekki allt í einu.  Þess vegna var þetta svo brilljant plan að taka annað hvert ár langt og hitt stutt.  Svo kom Laugavegurinn í fyrra og eftir hann fóru einhvern veginn öll vel íhuguð plön út um gluggann og það urðu bara örlög að fara aftur í ár...

Það er ekkert betra en að fá sér góðan, langan hlaupatúr til að komast að sannleikanum Grin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  sakn    (eins og Agga myndi orða það )


Börkur (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 15:38

2 identicon

Jáhá.....og maður les þetta bara á alnetinu....!! Buhu.....

Sigrún (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 16:23

3 identicon

Ég held að þetta sé rétt ákvörðun hjá þér, fjölskyldan er jú aðal málið. Og svo er bara að massa þetta á næsta ári en spretta úr spori þetta árið

Geiri (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 10:53

4 identicon

jeminn...  er þetta loka ákvörðun?  Mér líst ekkert á þetta.

vala (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 11:50

5 identicon

Tja...það er fallega gert af þér að leyfa öðrum að komast að. Þá er komin pressa á að einhverjar aðrar glennur vinni þetta. Held að Vala og Sigrún séu bestu kandítarnir þetta árið

Sóla (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 23:20

6 Smámynd: Agga

Við munum standa okkur vel í móttökunni í Þórsmörk ... þannig að ekkert sakn ... bara fagn :) Þú átt eftir að verða ofurhröð núna í sumar og ná bæði 40 mín markmiðinu og 1:30, enginn efi í mínum huga.

Agga, 18.2.2009 kl. 09:39

7 identicon

Já ég ætlaðist bara til að hún gerði þetta allt, Laugaveginn, -40.mín og -1:30mín. :)

kv. vala

vala (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 12:16

8 identicon

Ég tel að þetta sé góð ákvörðun hjá þér Eva. Gangi þér vel að hraða þér og ná flottum takmörkum fyrir stuttu hlaupin. Fylgist með :)

Alma María (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband