Leita í fréttum mbl.is

Víðavangshlaup Framfara í Draugaklettum

Vorum ekki beint í partý stuði eftir veikindaviku barnanna og ákváðum að sleppa Íslandsbanka tjútti í gærkvöldi.  Kúrðum okkur bara uppí sófa (ég með prjónana) og horfðum á sjónvarpið.  Planið var að við myndum skipta liði í dag, ég færi svona 15 km snemma og þá kæmist Þórólfur í Víðavangshlaup Framfara og ég tæki við hjúkrunarstörfum.  Eftir drollið á okkur í gærkvöldi breyttum við um plan og ákváðum að sofa þangað til litla skottið okkar myndi vekja okkur.  Lilja svaf til hálf níu en það hefur ekki gerst í háa herrans tíð.  Það sem meira var, hitinn var komin niður fyrir 38°. 

Í snarhasti var breytt yfir í plan b, við heyrðum í tengdapabba sem var voða glaður að fá að koma og passa afastelpuna sína.  Þá gátum við hjónin farið saman í hlaupið Smile.   Hlupum að heiman til að hita almennilega upp.  Það var hægt að hlaupa styttri og lengri vegalengd.  Við ákváðum að vera með í báðum, hlupum stutta hlaupið (1,3 km) í rólegheitum saman en tókum svo á því í lengra hlaupinu (4,3 km). 

Ég fann mig mjög vel og náði að hanga í henni Fríðu Rún, sem tók forystuna í upphafi, allan fyrsta hringinn.  Hún seig svo fram úr mér seinni tvo en ég missti hana ekkert rosalega langt frá mér og varð önnur í hlaupinu.  Ég upplifi það þannig að nýjar æfingar séu að skila sér í miklu meiri styrk og hraða, bara gott mál.

Á morgun er það svo Heiðmerkurtvíþraut en það er alltaf jafn gaman að vera með í henni.   4 km hlaup, 15 km hjól og 4 km hlaup í lokin, delissjuss og mjög mjókkandi Tounge.  Sá að það voru næstum engar stelpur búnar að skrá sig í gær, hvað er það?  Komaso stelpur, láta vaða!

 

varalitur
Lilja komst í glossið mitt...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún er svoooo sæt....við (ég og Helga og Hildur) biðjum að heilsa Lilju og Gabríel og vonum að þau verði alveg frísk sem fyrst.

Dagbjört Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eva Margrét Einarsdóttir
Eva Margrét Einarsdóttir

Ætlar að hlaupa styttra og hraðar...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband